Ég er að pakka enn á ný, líklega í milljónasta skipti í sumar. Við ætlum að skunda út á land á eftir, líklega í austurátt. Fara í útilegu, veiða og kíkja til berja, ég þarf að njósna aðeins áður en við systur förum á stjá í berjatínslunni. Og lesa Harry Potter! Leyfum veðri og vindum að ráða för, verst hvað spárnar breytast hratt - jafnvel oft á dag. Óþolandi. Við verðum allavega fram að helgi, sjáum þá til hvort við höldum aftur heim eða kíkjum við á Dönskum dögum í Hólminum.
...
No comments:
Post a Comment