Monday, August 08, 2005

Nesið er lítið og lágt....

Ég er eiginlega í hálfgerðu sjokki eftir að hafa í sakleysi mínu byrjað að horfa á Sjónvarpið með öðru auganu á meðan ég var að raða inn í stofuna og gera hana viðveruhæfa á ný. Ég lærði meira að segja nýtt orð, "hnattrökkvun". Mér líst illa á að Grænlandsjökull verði bráðnaður áður en að ég verð öll og að Bretlandseyjar verði orðnar eins og eyðimerkur Afríku innan 40 ára. Þetta var ansi fróðlegur heimildarþáttur svo ekki sé meira sagt. Þessi hnattrökkvun hefur líklega falið fyrir vísindamönnum hversu ógnvænleg áhrifin eru nú þegar af völdum gróðurhúsalofttegunda, þ.e. að hitastig jarðar hefði í rauninni verið meira ef ekki hefði komið til sýnilegrar loftmengunar. Og af því að þessi sýnilega mengun hefur minnkað undanfarin ár í Evrópu hefur hitastigið þar hækkað og var vísað til hitabylgjunnar hræðilegu 2003. Geisar ekki einmitt hitabylgja í Mið-Evrópu núna? Það dugar sem sagt ekki að draga bara úr sýnilegri mengun, það verði að stöðva losun gróðurhúsalofttegunda ekki seinna en í gær. Jaahá. Það er spurning hvað ég og þú getum gert - svona til þess að koma í veg fyrir að Vatnajökull og Grænlandsjökull bráðni - því það þýðir að ég þarf að flytja lengra upp á land. Álftanesið yrði fljótt að hverfa. Svolítil synd þar sem ég er loksins komin með svo fína stofu. Parket og alles......

....

No comments: