Græn og væn
Eins gott að það sjái mig enginn núna. Ég er ansi græn í framan, þökk sé þaramaskanum sem á að fríska upp á mína þreyttu húð. (þið hélduð örugglega að það væri af öðrum orsökum, ha?). Sukkið í sumar hefur sett mark sitt á ásjónu mína og því kominn tími til að gera eitthvað í málunum. Ég er því farin að skoða hollustuuppskriftir, fékk loks grænmetisgestgjafann sem kom út fyrir mánuði en hafði ekki ratað til mín, hundtryggs áskrifandans en mér var auðvitað sendur hann um leið og ég hafði rænu á að láta vita að blaðið hafði ekki komið. Svo er ég einnig búin að fara einu sinni með íþróttatöskuna í vinnuna, komst svo reyndar ekki í leikfimi í hádeginu eins og ég ætlaði mér, en þetta er þó fyrsta skrefið í átt að heilbrigðu lífi á ný. Að auki er nýi ísskápurinn eitthvað svo hollustulegur og grænmetislegur að sjá að ég verð bara að kaupa hollt og gott hráefni í hann. Ég er líka viss um að þegar ég druslast til þess að fara að hreyfa mig á ný og borða hollari mat þá slepp ég við svona leiðindadót eins og mígreni og vöðvabólgu sem hefur hrjáð mig síðastliðna viku. Því í staðinn fyrir að koma úthvíld og endurnærð úr sumarfríinu í vinnuasann þá kom ég bara úthvíld, löt og með króníska vöðvabólgu. Ekki gott. Mér hefði verið nær að halda áfram að hreyfa mig í fríinu.
Jæja, best að hreinsa maskann af og hefja þrif svo kettirnir fái ekki asma af gifsryki sem enn leynist í öllum hornum. Mín bíður einnig einhver vinna en ætli ég geymi það ekki þar til á morgun, ég hef líklega ekki tíma því bjútíprógrammið er ekki búið, ég er nebblega að fara í brúðkaup seinna í dag, veii!!
...
1 comment:
Já, fyrsta skrefið er alltaf að vera ákveðinn í að breyta lífstílnum. Þú virðist amk. komin af stað og óska ég þér alls hins besta! :)
Post a Comment