Thursday, August 25, 2005

Pavlova

Ég er að bíða eftir pavlovunni sem er að bakast í ofninum. Fékk að vita í dag að ég ætti að koma með kaffinu á morgun. Helst eitthvað heimabakað... Ég er svo hugmyndasnauð, ekki síst þegar það er brjálað að gera, að ég baka þá bara það sem ég kann, þ.e. marengs. Mig rámar að ég hafi ekki prangað Nigellu pavlovunni ennþá upp á vinnufélagana, þannig að ég smellti mér í Hagkaup og fjárfesti í ástríðuávöxtum (kalla það að fjárfesta þegar kílóverðið er um þúsund krónur) og byrjaði svo að baka uppúr klukkan tíu. Pavlovan kólnar svo bara í ofninum í nótt, hendi á hana þeyttum rjóma og kaldri ástríðu í fyrramálið- voila! Tilbúið. Ágætt fyrir svona morgunsleða eins og mig! Svo er ég að hugsa um að grípa Gestgjafann með mér í rúmið núna og ímynda mér að ég sé robboslega effissíent húsmóðir. Allavega finnst mér ég vera það þegar ég er að baka seint á kvöldin. Er svo súrrealístískt eitthvað. Ég hef nefnilega aldrei skilið konur sem nenna að dunda sér í eldhúsinu seint á kvöldin. Ég er meiri svona "í náttfötin, upp í rúm, með bók" týpa seint á kvöldin. Eða "liggja í sófanum að horfa á sjónvarpið frá því eftir kvöldmat þar til ég fer að sofa" týpa.
Jæja, best að setja tæmerinn á og fara uppí. Nenni ekki að vaka eftir þessari köku.

..

No comments: