Matseðill Sunnu kisu hefur verið með fjölbreyttasta móti í dag. Í morgun fékk hún smá Camenbert ost, harðfisk og kaffirjóma og áðan lambakótilettur með smá Bearnaise sósu. Eins gott að ræktandinn hennar hafi ekki séð til okkar í dag, sú fengi flog. En eftir mörg ár af dekri og knúsi þá er þessi eðalpersi ekkert annað en lítið frekt græneygt dekurdýr sem skipar mér í háttinn snemma svo hún geti knúsað mig og horfir geðvonskuaugum á eiginmanninn þegar hann rekur hana í burtu þegar hún hefur komið sér fyrir hans megin í hjónarúminu. Ég velti því fyrir mér hvort allir kettir séu svona heimaríkir?
Sé að berjasérfræðingurinn segir berin spretti vel og séu tilbúin. Minnst er á krækiber og bláber. En ekki stakt orð um aðalbláber. Veit maðurinn ekki að það eru einu berin sem skipta máli? Ef einhver veit hvernig AÐALbláberjasprettan er fyrir vestan, norðan og austan þá má sá hinn sami láta mig vita med det samme takk,
...
1 comment:
Fín aðalbáber í minni brekku á Snæfellsnesinu. Orðin nokkuð stór og falleg.
Kv
Gilla
Post a Comment