5 tilgangslausar staðreyndir um mig...
Ásta Svavars klukkaði mig á endasprettinum, ég neyðist víst til þess að vera höflich og finna eitthvað ekki af viti um mig.
1. Rödd Magnúsar í morgunútvarpinu nær yfirleitt að svæfa mig aftur þegar útvarpsvekjarinn fer í gang. Linda Blöndal hefur ekki sömu áhrif.
2. Ég hef Nebba grunaðan um framhjáhald. Hann angaði af Clinique Happy í morgun. Ég nota ekki Clinique Happy.
3. Ég er komin á blaðsíðu 195 í The Handmaid's Tale. Bókin er árituð "To Soffia, best wishes, Margaret Atwood". Fram að þessu finnst mér bókin töluvert betri en myndin. Það hefur ekkert með áritunina að gera.
4. Ég borðaði 5 súkkulaðimola í gær í vinnunni, þeir voru ekki hluti af mínum fríhafnarkaupum. Það var góð tilfinning og hafði allt með það að gera að ég á ennþá mitt fríhafnarsúkkulaði heima.
5. Það var einn Dani úti með mér á ráðstefnunni sem leit út eins og Colin Farrell. Hann heitir Kasper. Við Erla kölluðum hann Köttinn. Það hljómaði betur en Kasper.
Kerling, Skrukka og Hrafnkell/Ella fá klukk. Áslaug fær líka klukk en hún verður bara að senda mér það á meili fyrst hún er ekki með bloggsíðu.
...
No comments:
Post a Comment