Thursday, September 22, 2005

Ljós og list

Fyrsta kvöldið mitt í Kaupmannahöfn sigldum við frá hótelinu og yfir að veitingastað að nafni Noma. Hús eitt mikilfenglegt gegnt hótelinu vakti athygli mína og var okkur bent á að þetta væri nýja danska óperan. Á heimleiðinni hafði þessi bygging breyst, var ekki lengur upplýst af kvöldsólinni heldur kom nú öll birtan innanfrá. Ekki síður fallegt. Við fengum að heyra um dönsku milljarðana sem byggingin kostaði og deilurnar á milli arkitektsins og gefandans, hins ríka Maersk eiganda. Og þar sem ég stóð á bakkanum gegnt óperunni vakti athygli mína þessar þrjár gríðarlegu fallegu ljósakrónur sem sáust greinilega innan í byggingunni og virtust lýsa með alls konar litbrigðum út yfir kanalinn. Kvöldið eftir var okkur boðið í siglingu um þessa skemmtilegu kanala í Köben og viti menn....ferðin endaði fyrir framan óperuna. Og þar vorum við leidd inn og umvafin spariklæddum þjónum og okkur skenkt kampavín. Ég sá þá að þessar ljósakrónur voru í raun risastórir kúlulaga glerskúlptúrar sem breyttu um lit eftir þvi hvernig ég stóð og horfði. Að standa undir einum slíkum og dreypa á kampavíni var svolítið sérstök upplifun. Hún varð auðvitað enn betri þegar okkur var sagt að Íslendingurinn Ólafur Elíasson hafi hannað þessa upplifun. Tilfinningin í morgun þegar ég sá hugmyndirnar um íslenska tónlistarhúsið í Austurhöfninni yrði m.a. hannað af honum var enn betri. Kaupmannahöfn hvað?!!!
..

No comments: