Thursday, September 29, 2005

Enn og aftur!

Bíllinn minn bilaði í morgun. Og ég á leiðinni á fund og varð auðvitað of sein. Ég varð svo reið við verkstæðismóttökuafgreiðslumanninn í símanum að mér hálfbrá sjálfri. Enda þoli ég illa allar aðstæður sem ég hef ekki stjórn á, eins og bilaðar tölvur eða bilaða bíla. Bara gýs eins og Hekla. Stutt gos og fljótt að fjara út. Svo var ég voðalega ljúf við þessi grey á verkstæðinu áðan.

Það er samt gríðarlega ofboðslega óþolandi að tæplega tveggja ára gamall bíll sé að bila aftur og aftur.

Grrrrrrrrrrrr....

.....

No comments: