Þjáningar
Hef liðið miklar þjáningar vegna kvefflensu. Ofboðsleg leiðindi að fá slíka pest. Sérstaklega þegar maður neyðist til þess að halda sér gangandi vegna vinnu og kennslu. Þess má geta að í kennslunni í gær þurfti ég að tala í míkrófón og eins og flestir vita þá magna þessi helvíti upp öll hljóð. M.a. svona týpísk kvefhljóð. Nemendurnir halda örugglega að ég sé eitthvert búkhljóðafífl.
Hins vegar skreið ég í rúmið um klukkan níu í gærkvöldi og svaf til hálfátta í morgun. Er öll skárri og ætti því að geta komist í gegnum vinnuna í dag og kennsluna á morgun. Held ég sleppi þó míkrófónsdruslunni á morgun. Það verður að hafa það þótt einhverjir nemendur heyri ekki í mér, mannorð mitt er í hættu!
....
No comments:
Post a Comment