Nokkuð oft síðustu tvær vikur hef ég verið minnt á hversu lífið er mikið fjöregg. Á stuttum tíma hefur sorgin látið vita af sér í fjölskyldunni og allt í einu virðist allt annað eitthvað svo lítilfjörlegt. Svo bættist við að skólafélagi minn fórst á voveiflegan hátt á sama tíma. Þrjár manneskjur sem ég þekkti vel dóu með þriggja daga millibili. Og í kringum mann eru ættingjar og vinir sem syrgja. Og sorgin er sérkennilegt fyrirbrigði en maðurinn er enn sérkennilegri því heilinn nær samt sem áður að fúnkera á einn eða annan hátt þrátt fyrir sorgina. Við fráfalls náins ættingja fer einnig af stað ákveðið upprifjunarferli og oft áður en ég veit af er ég orðin ellefu ára, heima hjá afa að læra að umgangast bækur. Eða borða bláar pönnukökur. Eða að fylgjast með honum borða hægt. Mjög hægt. Skoða myndina af skautunum í forstofunni og velta því fyrir mér hverjir hafi átt skautana. Troða mér í tíglagluggann. Laumast ofan í kjallarann og sitja fyrir sakleysingjunum systrum mínum og deyja svo sjálf úr hræðslu við ímyndaða drauga. Húka fyrir framan afakompu og vona að hann lumi á svo sem nokkrum síríuslengjum þar inni. Fylgjast með nætursólinni skoppa á haffletinum útum gluggann á afakompu. Horfa á frænku mína, aðeins eldri en ég, og velta því fyrir mér hvernig sé að eiga afa minn fyrir pabba. Það er, að afi minn sé líka pabbi - ekki bara afi. Það þótti mér skrítið.
...
No comments:
Post a Comment