Tuesday, September 27, 2005

Samsæriskenningar

Það eru allir að halda á lofti samsæriskenningum og ég skil hvorki upp né niður í þeim. Hins vegar tel ég mig vera saklaust fórnarlamb útspekúleraðs samsæris sem á rætur sínar að rekja til Stöðvar tvö. Í hvert sinn sem ég er að horfa á Sjónvarpið þá er allt í einu komin Stöð tvö á skjáinn. Fyrst til að byrja með hvessti ég augun á bóndann og húðskammaði hann fyrir að leyfa mér ekki að horfa á mína bresku sjónvarpsþætti í friði. En hann sýndi mér fram á það að hann gæti varla skipt yfir ef ég sæti með fjarstýringuna í hendinni, ég hljóti bara að hafa rekist í hana sjálf. Síðan þá höfum við bæði séð það gerast a.m.k. á hverju kvöldi að sjónvarpið skoppar af RÚV yfir á Stöð tvö. Þetta gerist eingöngu eftir klukkan hálfátta á kvöldin og bara ef við erum að horfa á RÚV.
Við erum á því að Digital myndlykillinn sé bara stilltur svona, það eigi að "veiða" áhorfendur yfir á hina sjónvarpsrásina. Finnst ykkur þetta ekki vera duló? :o)
....

No comments: