Sunday, October 16, 2005

Söngfuglar og fjörfiskar

Helgin án húsbóndans hefur sem betur fer skriðið áfram á ógnarhraða. Að sama skapi hefði ég alveg þegið það að hún myndi sligast hægt og rólega áfram með tilheyrandi afslappelsi, útsofelsi og bakkelsi. Ég fékk reyndar bakkelsi í gær sem er eitt það besta sem ég hef fengið lengi, en ég var boðin í afmæli til Bryndísar vinkonu minnar sem varð tólf ára í gær. Mamma hennar, sem er afmælissystir mín og listakokkur, töfraði fram m.a. tvær kökur þar sem uppáhaldið mitt - súkkulaði - spilar stóra rullu. Minningin um bragðið af báðum kökum yljar mér enn. Ég er með einlæga matarást á þessari konu. Féll fyrir henni þegar hún birtist á gamla vinnustaðnum okkar með heimalagaða Snickersbita, sérstaklega útbúna fyrir mig. Enda vinn ég ennþá með henni í dag. Hún eignaðist mig með húði og hári fyrir um fjórum árum síðan.
Fyrri part gærdagsins eyddi ég í vinnunni en skundaði svo eftir hádegi í Ikea með systrum mínum þar sem sú yngsta "missti sig" og fékk karlinn hennar áfall á kassanum. Hann höndlaði þetta þó vel og rétti fram greiðslu með styrkri hendi. Við hinar tvær misstum okkur aðeins minna en höfðum þó gengið til verks af ákveðinni einbeitni. Ég og sú yngsta erum nefnilega búnar að kenna þessari í miðjunni að þegar jólavörurnar koma í Ikea í október er nauðsynlegt að bregðast við af festu og ákveðni því það klárast allt fyrstu dagana. Við urðum m.a. að skutla okkur á svona seríujólatré eins og þýski geðvondi markmaðurinn, með samanbitinn munn og þjóstufullum þokka, til þess að tryggja eintök fyrir okkur allar þrjár. Jólatré úr Ikea munu því prýða heimili okkar systra fyrir jólin.
Eftir að ég hafði svo étið á mig gat af ljónaköku og súkkulaðimarengsköku fór ég í mat til þeirrar yngstu, sem notabene var búin að koma flestum Ikeavörunum fyrir sem ekki tengdust jólum, og þar var bara hörkuflottur forréttur og ljúffengur aðalréttur og svo SingStar í eftirrétt. Ég var komin heim löngu eftir miðnætti, það var svo gaman hjá okkur. Systur mínar eru nefnilega miklir söngfuglar. Ashford&Simpsonlagið "Solid" var tæklað af mikilli alvöru og eftir kúnstarinnar reglum til að finna út hvor þeirra syngi betur. Það kom á daginn að þær syngja báðar jafnvel. Enda tvíburar.
Þegar ég kom heim var ég komin með fjörfisk í vinstra augað. Hann var ennþá að í morgun. Á Doktor.is segir að þetta tengist þreytu, álagi og streitu. Það er spurning að koma sér í heitt bað áður en ég dreg fram heimavinnuna. Í kvöld er svo raddæfing á dagskrá hjá breskum snillingi sem m.a. hefur verið að setja upp óperur fyrir austan. Svo er auðvitað kóræfing annað kvöld. Þetta verður því mikil sönghelgi!
...

No comments: