Tuesday, October 18, 2005

Góðar stundir

Fjörfiskurinn stekkur enn af miklum krafti og pirrar mig gríðarlega. Í heimsókn til heimilislæknisins í dag vegna hálstognunar minntist ég á þennan fjörlega fisk sem hefur verið að hrjá mig síðan á laugardagskvöldið. Læknirinn taldi þetta stafa af of miklu álagi og streitu, eins og ég hélt, og að ég yrði að slaka á. Ég fór því beinustu leið í Fjarðarkaup. Hef ekki komist þangað lengi og eins og dyggir lesendur mínir vita þá upplifi ég söknuð og þrá eftir þessari ágætu búð ef ég hef ekki haft tíma til að rölta þar í gegn í einhvern tíma. Þar gerði ég innkaup fyrir vikuna, keypti mér nýja kaffibolla og skoðaði búsáhöld, lífrænar vörur og kryddhilluna af miklum áhuga. Þegar heim var komið fékk ég mér þingeyska kindakæfu á nýju speltbrauði og kaffi úr nýja bollanum og las vampýrusöguna sem ég datt niðrá í Eymundsson um daginn. Dottaði í hálftíma þar til húsbóndinn kom heim. Sem sagt, átti svona góða síðdegisstund annars staðar en fyrir framan tölvuna í vinnunni. Ég var næstum því búin að gleyma hvernig það er að hætta snemma í vinnunni og þyrfti í raun að gera þetta oftar...
..

No comments: