TGIF!!
Alltaf er jafngott þegar föstudagur er mættur með helgina framundan með tilheyrandi kryddi í tilveruna. Helgar eru nefnilega bráðnauðsynlegar til þess að vinna upp ósköp venjuleg heimilisverk eins og að þvo þvott og þrífa eldhús og skipta á rúmum. Sérstaklega þegar maður hefur ekki tíma til að gera nokkurn skapaðan hlut dags daglega eins og t.d. að fara með buxur í styttingu. Þær bara bíða í margar vikur þar til ég kemst til meðvitundar og skrepp með þær í okurbúlluna á 3. hæð í Kringlunni á hlaupum í hádegishléinu af því að ég hef ekki tíma til að fara með þær til saumakonunnar í Hafnarfirði sem rukkar helmingi minna en gefur það samt upp til skatts.
Við hjónin skruppum í sund eftir vinnu í dag, alltaf jafnnotalegt og ég skil ekkert í sjálfri mér að gera þetta ekki oftar. Annars kláraði ég eina bestu bók í gær sem ég hef lesið í langan tíma. Elizabeth Kostova datt þarna niður á góða blöndu af Nafni rósarinnar, Da Vinci lyklinum og sagnfræði og þjóðtrú miðalda í bókinni "The Historian". Ég var gjörsamlega "húkkt" eins og sumir segja. Gat ekki hætt. Las fram á miðjar nætur. Er orðin ágætlega að mér í pílagrímsferðum munka frá Rúmeníu til Konstantínópel og yfir til Búlgaríu á fimmtándu öld. Og kynntist Vlad Tepes, öðru nafni Drakulya. Hann er kynntur til sögunnar á ansi öðruvísi hátt en maður þekkir úr Bram Stoker's Dracula. Ægilega spennandi og vel yfir 600 síður. Eintóm sæla fyrir svona bókasjúkling eins og mig. :o)
.....
No comments:
Post a Comment