Monday, November 28, 2005

...blikar jólastjarna...

Ég bið ykkur forláts á að hafa ekki verið duglegri að blogga síðustu daga en mér var þeytt til meginlandsins í nokkurra daga vinnu án nokkurs fyrirvara, fékk ekki töskuna mína fyrir en kvöldið áður en ég fór heim aftur, kom heim á föstudagskvöldið og eyddi svo laugardeginum á svokallaðri "langri" kóræfingu, þ.e. æfði jólalög frá morgni til kvölds. Ég náði svo aftur jarðtengingu í gær þegar ég fékk að dunda mér í eldhúsinu við að gera Sörukrem og þrífa eldhússkápa. Ég kann alltaf betur og betur að meta svona heimilisstúss, það þýðir að maður hefur ekkert annað betra að gera sem er bara jákvætt innan um þessi eilífu hlaup svona hversdags.

Kórtónleikarnir verða í Grensáskirkju þann 7. desember nk, þannig ef ykkur langar á jólatónleika þá vitið þið af þessum. Kórstjórinn okkar ætlar aðeins að láta ljós sitt skína og spila á trompet í nokkrum lögunum og svo syngjum við líka með öðrum kór, Samkór Kópavogs. Ég held að þetta verði bara nokkuð gaman.

Er að hugsa um að skríða í háttinn, var að koma að kóræfingu og í kollinum klingir Guðs kristni í heimi og Einu sinni í ættborg Davíðs ásamt aaaaaahhh kafla í Í borg er nefnist Betlehem. Þessir aaaaaahhhh kaflar geta verið ansi snúnir. Sérstaklega þegar maður kann í sjálfu sér ekki nótur og þarf að leggja á minnið. Ég hef alltaf verið með ansi gott sjónminni, og er eiginlega búin að sjá það að maður getur verið með gott heyrnarminni líka, en það er með það eins og hitt að það þarf eitthvað að "triggera" minnið til að tónaröðin velli fram. Æ, vell, kemur í ljós í næstu viku hvort eitthvað hefur setið eftir!
...

No comments: