Tuesday, November 29, 2005

Skjálftavaktin

Bóndi hefur verið slappur undanfarna daga og í morgun skreiddist hann á fætur skjálfandi og titrandi og fór til vinnu. Hefði með réttu átt að vera undir sæng og reyna að jafna sig. Á svona stundum sést hversu mikil ábyrgð það er að reka eigið fyrirtæki. Við launamennirnir getum a.m.k. verið heima með góðri samvisku þegar vondar pestir herja á mann, en ekki þessir sjálfstæðu atvinnurekendur sem ekki eru með trausta aðstoðarmenn sér við hlið. Ég gæfi mikið fyrir að vera með einn svona aðstoðarmann, já eða geta verið sjálf þarna í fiskvinnslunni og haft umsjón með þessu öllu og leyft bóndanum að vera heima. Verst að ég kann bara ekkert á Baader vélar þegar þær bila né að kaupa á uppboðsmarkaðinum. Né heldur að sjá um þessa útflutningspappíra og allt í kringum þennan fiskbissness.

Æ, hvað ég vorkenni þessari elsku núna.
....

No comments: