Wednesday, November 09, 2005

Kvöldblogg

Það var vigtun í ræktinni í morgun eftir klikkaðslega erfiðan tíma. Ég hef sem sagt lést um heil 200 grömm síðan í síðustu viku. Ég hefði kannski átt að sleppa Lays flögunum á laugardaginn? Ég ákvað að vera aðeins duglegri þessa vikuna og hef t.d. alveg látið nammiskápinn í vinnunni í friði. Og líka hérna heima. Fékk samt köku hjá mömmu og pabba í gærkvöldi enda ekki annað hægt, hún var svo girnileg.

Ég hóf formlega jólainnkaup í hádeginu í dag. Fór með Kerlingu á Súfistann og keypti í leiðinni fyrstu desemberafmælisgjöfina sem ég tengi í raun alltaf við jólainnkaup. Bara svo að það komi fram þá eiga 6 af mínum nánustu ættingjum afmæli í desember: Kata svilkona mín, tengdamamma, systurdóttir mín og bróðursonur eiginmannsins, og svo báðir mágar mínir. Já og ein föðursystir. Svo kemur restin í janúar og febrúar, þ.e. systur, foreldrar og eiginmaður og svo ein æskuvinkona. Einu sinni fannst mér það alveg hræðilegt öll þessi afmæli í mesta skammdeginu en í dag er þetta alveg frábært, lífgar upp á hversdagsleikann sem einkennir oft vikurnar eftir jól!

Jæja, ég á að vera að skrifa fyrirlestur og ræðu en er að gera eitthvað allt annað, týpískt. Er reyndar komin nokkuð langt en er bara orðin andlaus. Þá er líklega best að hætta.

.....

No comments: