Obbosí - kominn miðvikudagur?
Rosalega líður tíminn hratt. Ætli jólin verði ekki komin áður en maður veit af. Annars er ég á kafi í að undirbúa fyrirlestur sem ég verð með á ráðstefnu á föstudaginn og svo var ég beðin um að taka að mér veislustjórn á laugardaginn í tæplega 300 manna veislu. Doldið mikill pakki og sálartetrið var því svolítið tætt í morgun, ég ætlaði nefnilega aldrei að sofna. Það var því ágætt að láta þræla sér út í brjálaðri stöðvaleikfimi í morgun. Ég er bara þokkalega róleg núna...
...
No comments:
Post a Comment