Sunday, November 06, 2005

Sunnudagur...

Vetrarborgin hans Arnaldar er ágæt aflestrar. Var að klára hana og að venju hef ég alltaf jafngaman af Erlendi. En hann Arnaldur mætti eyða aðeins meira púðri í félagana Elínborgu og Sigurð Óla, fyrst hann er á annað borð að sýna okkur persónurnar utan vinnunnar. Mér finnst þessi saga mun betri en Kleifarvatn en morðið eða plottið er síðra en þessar tvær bestu - Mýrin og Grafarholt.

Bóndinn fór eldsnemma í morgun að leika sér á leikfanginu einhvers staðar út fyrir borgina, ótrúlegt að menn nenni að hjóla í ískulda en þessi mótorhjóladella er víst óútreiknanleg. Ég ætla hins vegar að skella mér í Söng og sund í Gerðubergi núna klukkan eitt. Góð bók, söngur og svo kannski systrasamvera er bara hin fínasta sunnudagsuppskrift. Þarf reyndar að troða vinnu og undirbúning að fyrirlestri þarna einhvers staðar inn á milli.

Æ, já - fór á Laugaveginn aðeins eftir vinnu í gær og var að leita mér að fylgihlutum við samkvæmiskjólinn sem ég fæ að skrýðast næstu helgi. Mikið rosalega var gaman að rölta meðfram öllum búðunum. Heyrði meira og minna bara útlensku og leið eins og ég væri einhvers staðar erlendis! Datt niður á frábærlega flotta skó- og töskubúð, Friis&Company eða eitthvað svoleiðis og fann þar skó við kjólinn. :o)

....

No comments: