Wednesday, January 11, 2006

Líkamsrækt og kjúklingur

Alltaf skal það sama brenna á manni í byrjun janúar, heilbrigði - mataræði - lífstíll. En á sama tíma er endalaust myrkur og rigning. Reyndar snjóaði í gær og hæfði vel þessum síðbúna Þrettánda hérna í sveitinni því þá var loksins kveikt í brennunni og alls staðar var verið að skjóta. En það urðu ákveðin þáttaskil í gær þegar húsbóndinn stal íþróttatöskunni minni og skellti sér í Hress á átaksnámskeið fyrir karla. Ég á nú minn þátt í að ýta að honum auglýsingunni og benda honum á að honum veitti sko ekki af svona námskeiði. Hann er alls ekki feitur, hefur aldrei verið það en það má alltaf styrkja og auka úthald, enda ætla sumir sér að leika meira á torfæruhjólinu í vor og sumar og þá þarfheldur betur úthald og styrk. Svo er ég að vona að hann sjái ljósið og hætti að kaupa nammi og gos - auðveldar mér allt átak! Það er kannski bjartsýni aldarinnar. En þegar að þeim tíma leið sem hann yrði búinn var ég eiginlega tilbúin með kvöldmatinn og biðum við Aska bara rólegar, hún var ekkert að kippa sér upp við sprengugleði nágrannanna og var bara að reyna að laumast inn í eldhúsið þaðan sem góða lyktin af ofnsteiktu kjúklingaleggjunum kom. En aldrei kom maðurinn heim, og var nú farið að líða langt fram yfir eðlilegan tíma. Ég var farin að halda að hann hefði örmagnast í tímanum og líklega væri verið að stumra yfir honum á meðan ég væri að hafa áhyggjur af ofelduðum mat. Ég hringdi í gemsann og viti menn...minn maður var bara að sýna nýja jeppann. Búinn að vera á týpískum jeppakarlakjaftagangi í þrjú kortér sem þeir einir þekkja sem hafa kynnst jeppamönnum. En sem sagt, hin ameríska Toyota er mætt á svæðið, ægilega flott og svört í stíl við Ösku hina austfirsku.
....

No comments: