Sunday, February 12, 2006

Gylltar strendur og grænblátt haf

Ég bíð spennt eftir svörum frá nokkrum hótelum við Tyrklandsstrendur um það hvort þar sé aðstaða til að tengjast internetinu í gegnum háhraðatengingu. Ekki af því að ég ætli að blogga svona mikið í fríinu, heldur svo að við komumst í frí yfirhöfuð. Við erum í ánauð fiskvinnslunnar og fiskmarkaðsuppboðsins og því "nauðbeygð" til þess að vera á þannig hóteli að það bjóði upp á adsl-tengingu fyrir fartölvur. Þangað til mæni ég stóreygð á vefsíður ferðaskrifstofanna og virði fyrir mér óraunverulegar myndir af fögrum ströndum, heiðbláum himni og skærri sól.

Við fengum heimsókn áðan, vinafólk okkar kíkti við og færði okkur kræsingar úr bakaríinu. Við slógum því upp smámorgunverðarveislu. Þetta gat ekki gerst á betri tíma því við vorum hálflengi að dröslast framúr í morgun enda svaf Aska til að verða hálftíu. Algjör lúxus. Við vorum að koma úr fjöruferð. Sú litla var alveg í essinu sínu og elti m.a. fugla lengst út í sjó. Hún var líka skoluð með garðslöngunni núna áðan þegar við komum heim, enda öll í salti og sandi. Framundan er afmæliskaffi hjá pabba. Best að hafa sig til og fara og kaupa afmælisgjöfina handa honum.
...

No comments: