Vínber og gulrætur
Klukkan er rétt að verða hálfellefu á sunnudagsmorgni og hér lúra allir eftir göngutúrinn í rigningarúðanum. Alveg ægilega notalegt. Bóndinn var að skríða aftur uppí og alls staðar eru sofandi kettir og voffi. Þessi síðastnefndi hrýtur meira að segja enda tekur það á að fara einn rúnt meðfram fjörunni þegar maður er bara hvolpur ennþá. Eftir að hafa fengið vínber og gulrætur þá lognaðist Aska útaf og liggur núna í sófanum eins og prinsessa, nema ég held að prinsessur hrjóti ekki.
Ég er að baka köku, enda er kaffi seinna í dag i tilefni af 35 ára afmæli bóndans í gær. Ég er ekki alveg búin að ákveða annað meðlæti. En það kemur. Ég hlýt að fá hugmynd að einhverju á eftir enda úthvíld. Fór snemma að sofa bæði í gær og í fyrradag. Í fyrradag rétt náði ég að halda mér vakandi fram yfir fyrri hlutann í Idolinu, en sofnaði yfir úrslitunum.
..
No comments:
Post a Comment