Konur í pólitík
Setti inn nýjan link á síðuna, rakst á skemmtilega bloggsíðu þar sem öflugar konur blogga. Eru að mér sýnist allar Samfylkingarkonur sem er hið besta mál og tími til kominn að þær reyni að hífa flokkinn upp aftur. Ætla að reyna að fiska fleiri linka þar sem konur í stjórnmálum tjá sig af einhverju viti...finn örugglega rjómann af þeim linkum hjá henni Silju vinkonu. Svo má ekki gleyma henni "systur" minni sem er dugleg að tjá sig á sinni síðu. Já, það verður fróðlegt að sjá hvaða flokkur fær atkvæðið mitt í vor. Er eiginlega svolítið spennt að sjá hver vinnur. Jafnrétti, umhverfismál, öflug stefna í heilbrigðismálum og félagsmálum og atvinnumálum og síðast en ekki síst alþjóðamálum - hver býður best?
No comments:
Post a Comment