Friday, February 02, 2007

Kvef

Er með stíbblað nef og þrútin augu. Fór samt á smá kerlingarhitting á Thorvaldsen Bar. Játa að það var bara nokkuð gaman að vera í hringiðunni þrátt fyrir lásí heilsufar. Fór svo heim þegar mjólkurbúið yfirfylltist. Tók eftir því að miðbærinn hefur lítið sem ekkert breyst og jafnvel ennþá sama fólkið á kaffihúsunum. Það er ágætt að fá það staðfest að maður er ekki að missa af neinu stórvægilegu.

Það var gott að koma heim og fara í náttfötin og horfa á lúðalegan X factor þátt. Mikið vildi ég að Stöð 2 myndi frekar sýna ameríska idolið fremur en þennan glataða þátt.

1 comment:

Silja Bára said...

hey, ég vissi ekki að þú værir byrjuð að blogga aftur! gaman:) Og missti ég virkilega af þér á Thorvaldsen á föstudaginn? Kom reyndar ekki fyrr en ansi seint...