Svefn og næring
Er hálfsvefnvana eftir síðustu daga. Það tilheyrir víst lífinu og tilverunni með ungum börnum að næturnar eru oft ansi tætingslegar. Þegar ofan á það bætist svæsin kvefpest hjá ungviðinu þá er svefninn hjá manni sjálfum algert aukaatriði. Mér finnst það samt sem áður magnað hvað maður getur vanist því að vakna og vaka á næturna. Það sem fer hins vegar meira á sálina hjá mér er þessi hálfgerði næringarskortur sem maður býr við á daginn. Ég hef þó reynt að vera hugmyndarík og finna upp á einhverju öðru til að eta en bara brauð. Brauð er nefnilega svo fjandi fitandi. Ég þvældist því um í heilsuhorninu í Fjarðarkaupum í gær og tíndi til hitt og þetta sem ætti að geta haldið geðinu uppi því eins og þeir vita sem þekkja mig þá þoli ég illa vondan mat, engan mat eða bragðlausan mat. Og ef blóðsykurinn hrynur þá verð ég viðskotaill og fæ höfuðverk dauðans. Ég fór hins vegar svolítið svöng að versla og uppskar því matarkarfan ýmsan óþarfa og óhollustu. Ég er því ekki alveg viss hvað nákvæmlega verður fyrir valinu núna í hádeginu....bíddu við - ég var búin að gleyma að hún Kristín afmælissystir mín kom með heimalagaða gúllassúpu handa mér í gærkvöldi. Tja, þá er það vandamál leyst. :o)
2 comments:
Heimalagaða gúllassúpu?
Hún má alveg koma hingað líka í Kúrlandið!
Áttar þú þig á því hvers konar dekurdúkka þú ert?
Já, finnst þér ég ekki eiga það skilið? Það finnst mér.... :o)
Post a Comment