Friday, February 14, 2003

Það er mikil blessun...

...að það skuli vera kominn föstudagur. Ég hefði ekki "meikað" einn virkan dag í viðbót í þessari viku. Sumir dagar eru verri en aðrir. Svo koma heilu vikurnar sem eru vondar. *hrollur* Þótt ég þurfi að vinna á morgun þá er mér sama. Það er allt annað að vinna í rúligheden á laugardegi en á venjulegum virkum degi. Svo er bara að slaka vel á á sunnudaginn svo maður sé til í slaginn á mánudegi.

49 dagar þangað til ég fer til Stokkhólms....


Thursday, February 13, 2003

Ég trúi þessu ekki....

...eftir því sem ég sá í fréttum í gær virðist Steingrímur Joð vera eini þingmaðurinn sem kom með einhverjar athugasemdir í svipuðum dúr og ég nefndi hér fyrir neðan. Nú er mér hætt að lítast á blikuna. Ég og Steingrímur Joð erum farin að eiga samleið í ýmsum málum. Umhverfisvernd (erum bæði á móti þessu ljóta virkjunarskrímsli fyrir austan) og svo þetta. Nú er mér ekki rótt.... *svitn*

Wednesday, February 12, 2003

Það eru svo sem ekki slæmar fréttir...

...að okkar ágæta ríkisstjórn ætli að dæla fjármagni út í atvinnulífið til þess að koma boltanum til að rúlla á ný og án þess að hækka skatta. Aðalmálið er víst að minnka atvinnuleysi. Og eins og áður er fjármagnið fyrst og fremst eyrnamerkt vega- og byggingarframkvæmdum. Þá spyr ég....hvað með hinn helminginn á atvinnuleysisskrám? Þann helminginn sem ekki er með aukatólið lafandi á milli lappanna? Að hvaða leyti kemur þetta atvinnulausum konum til góða? Já, og þeim karlmönnum reyndar líka sem ekki vinna við að byggja, hanna eða smíða? Ég er ekki að segja að einhverjar konur muni ekki fá vinnu út á þetta og ég átta mig svo sem einnig á því að þegar til lengdar lætur mun þetta skila sér út í hagkerfið sem kemur öllum til góða. En hvað með núið? Af hverju falla ráðamenn alltaf í sömu gryfjuna? Af hverju var ekki fjármagni veitt til rannsóknarstarfa á sviði menntamála eða heilbrigðismála? Eða verkefni á sviði verslunar, viðskipta eða þjónustu? Starfshópa og átaksverkefni í málaflokkum sem fjalla um fjölskyldumál og heilbrigðismál? Já, eða til að veita þá þjónustu í heilbrigðiskerfinu sem er lögbundin en ekki hefur verið til fjármagn fyrir? Látið mig þekkja það.....veit ýmis dæmi því tengdu.

Allavega, ég er ekki ósátt við aðgerðirnar sem slíkar...heldur hvernig fjármagninu er varið. Af hverju er verið að mismuna starfsgreinum? Af hverju eiga bara verktakar að njóta góðs af?
Ef einhver sér meiri glóru í þessu en ég, látið mig vita....

Pústi dagsins lokið...í bili.

Tuesday, February 11, 2003

Þurrkatíminn mikli...

....þegar hitastigið sveiflast úr mínus fimm í plús fimm þá lætur mín heldur betur á sjá. Þurrar varir, þurrt hár, þurrar hendur, þurrt loft, sárar nasir....þoli ekki svona veðurfar. Þá er rakinn á Flórída skárri, enda er maður mjúkur eins og barnsrass þegar maður er búinn að vera þar í smátíma að vetrarlagi. Það er löngu kominn tími á smá upphalningu....klippingu, dagsstund hjá snyrtifræðingi, heilnudd, slökun.... *andvarp* Það verður að bíða næsta mánaðar, febrúar er búinn...svona fjárhagslega séð...

Já, þetta var bjútí-blogg dagsins... Góð ráð mega gjarnan sendast á snjofus@hotmail.com

Friday, February 07, 2003

Æ.....

...það er of mikið að gera hjá mér í vinnunni. Enda besti tími dagsins að loknum opnunartíma...þá fær maður vinnufrið. Og frið til að kíkja á netið. Og blogga. Annars var verið að kvarta yfir því við mig að ég hefði ekkert bloggað í "marga daga".... !!! Það er af því að það er alltaf verið að trufla mig í vinnunni...út af einhverju tengdu vinnunni! Þ.e.a.s. viðskiptavinirnir....þvílík ósvífni... :o)

Sem sagt...í gær vorum við hjónin með matarboð...jeppaklúbburinn sem við erum í hittist reglulega yfir góðri máltíð og skemmtir sér við glens og grín langt fram eftir kveldi. Ég fór sem sagt að sofa í gær með harðsperrur í kinnunum. Í dag er aðalmálið að hún Sunna kisa, mamma Nebba, fór í aðgerð í morgun. Verið að taka hana úr sambandi svo hún komi ekki með fleiri Nebba á meðan við hjónin skreppum á fjöll yfir helgi. Hún hélt nebblega orgíu af bestu gerð í fyrra þegar við vorum í burtu. Afraksturinn var þá fjórir "bastarðar"...en Sunna er sko hefðarköttur...sem vildi ekki fínan persneskan prins heldur nældi sér í nokkra úr fresskattagenginu þarna á Álftanesi. Hún fær ekki að komast upp með slíkt aftur og var því svipt öllu sem heitir kynhvatir klukkan hálftíu í morgun. Á heimili mínu búa því þrír geldingar í dag. Fróðlegt að sjá hvort valdabaráttan riðlist eitthvað...hún er alltaf í gangi. Endalaus urr og hvæs. Barátta um svefnstaði og matardalla. Hver fái að kúra hjá "mömmu" í kvöld. Já, þessi dekurdýr geta verið erfið....

Playstation 2...

...er aðalmálið í dag. Bóndinn fékk hana í afmælisgjöf. Ég keypti líka tvo leiki. Kappakstursleik (því ég vinn hann alltaf í svoleiðis og það er ljúft...) og svo Hringadróttinssögu. Ég er "stökk" í fyrstu baráttunni, þ.e. við Ringwraithana. Fór því inn á svona svindlsíðu og prentaði út svona tips. Leið eins og tólf ára tölvunörd, karlkyns, þegar ég náði í þetta á prentarann..... En einu lofa ég...ég skal vera komin lengra eftir helgina. Og hvern valdi ég? Aragorn...að sjálfsögðu!

P.s....voruð þið búin að sjá nýjustu myndirnar úr þriðju myndinni?? Ekki? Kíkið þá á þessa síðu, þar finnið þið allt nýtt um LOTR:ROTK.

Wednesday, February 05, 2003

Úff.....

...þetta er nú meira brjálæðið. Eftir að hafa átt töluvert rólegan morgun (þýskutíminn féll niður og ég fór bara í heimsókn til vinkonu minnar og við hittum þá þriðju í kaffistofunni í Þjóðmenningarhúsinu. Namminamm...súpan og brauðið þarna er alveg syndsamlega gott) þá er síðdegið þeim mun klikkaðra. Dísus...ég er komin með verki í kjálkann af því að tala við milljón manns og leiðbeina fullt af fólki sem ég furða mig á að hafi yfir höfuð ratað hingað í vinnuna til mín. Ég held ég hafi sett persónulegt met í því hversu marga viðmælendur ég gat afgreitt á hálftíma. Og svo bara bætist við verkefnin á borðinu sem þurfa helst að klárast í gær.
Ég stalst fram hjá fullt af fólki í biðröð frammi og fór upp og náði mér í grænt te. Sit hérna fyrir framan tölvuskjáinn og með lokað að mér. Er að anda djúpt. Slaka á. Ætla að gefa mér fimm mínútur í það. Svo helli ég mér aftur út í frumskógarstríðið....

Tuesday, February 04, 2003

Sjónvarp...

...er stundum hið allra besta sem hægt er að hanga yfir. Ekki síst á kvöldum eins og í gærkveldi. Átti sem sagt alveg frábæra stund fyrir framan imbann í gær. Og verð að segja að lögin þrjú sem kynnt voru til sögunnar fyrir undankeppnina í Júróvisjón voru bara nokkuð skemmtileg. Svo var Frasier góður að vanda, The Court á Stöð 2 var góður og Philly á Skjá 1 var líka nokkuð skemmtilegur. Náði ekki að horfa á Dead Zone en geri það í kvöld ef ég verð ekki of þreytt til að bíða eftir endursýningu. Jamm, ég og Nebbi kúrðum bæði undir sæng og horfðum á kassann....hið "bestasta" mánudagskvöld. :o)

Í kvöld verður haldið upp á afmæli bóndans. Ég vona að hann verði búin að skúra og baka þegar ég kem heim...

Monday, February 03, 2003

Nýjar tölvur...

..í vinnunni. Komin vonandi með tölvu sem ekki frýs mörgum sinnum á dag. Það gat stundum gert mig snartjúllaða að vera í miðju kafi við að lesa netpóstinn minn eða eitthvað og svo bara FROST. Grrrrr.... Það eina við þetta nýja er að núna er ég bara með msn-messenger, þannig að þið sem eruð með það og viljið ná sambandi við mig í vinnunni sendið mér endilega msn-nafnið ykkar. Þetta á ekki síst við ykkur sem ég var með á Yahoo messenger. Ég er "snjofus" á msn :o)

Jæja, er á leiðinni heim í sunnudagssteikina....þessi sem átti að vera í gær en var geymd þar til í dag því jeppasjúklingurinn fór á fjöll. :o) Namminamm....
Fjalla-Eyvindur..

...kom heim klukkan fimm í nótt. Örmagna en ánægður eftir ferðina. Þetta var víst obboslega gaman. Ekki síst því þeir félagar komu að gagni og gátu aðstoðað aðra í vandræðum. Og fengu ágætan skammt af jeppaferðum, snjó og GPS-tækjum....þetta ætti að duga fram að næstu helgi en þá er fyrirhugað þorrablót í Gæsavatnaskála inn við Vatnajökul norðvestanverðan. Það ætti að verða gaman! :o)

Sunday, February 02, 2003

Eiginmaður minn er illa haldinn...

...af fjalla- og jeppabakteríu. Fór í morgun eldsnemma inn á miðhálendið til að "bjarga" félögum sínum sem höfðu verið á leiðinni úr bænum upp í Setur, við rætur Hofsjökuls, í meira en 32 tíma (frá eftirmiðdegi á föstudegi fram til kl. 2 aðfararnótt sunnudags en þá komust þeir loksins í skálann...). Ferðalangana þjakaði ýmislegt m.a. brotinn öxull, ónýtir felguboltar, beyglaðar felgur, dekkjavesen o.fl. o.fl. Síðast þegar ég talaði við hann þá var kominn blindbylur, brjálað veður og þeir áttu eftir kílómeter í skálann og það var bara fínt í honum hljóðið.... Hinir, sem fyrir voru, voru nýlega komnir aftur í skálann eftir smá viðgerðarleiðangur (skildu einn bíl eftir í gær nokkra km. frá skálanum) og eru að bíða eftir "björgunarmönnunum". Ætli ég fái bóndann nokkuð heim fyrr en í nótt einhvern tímann??

Það er kannski hjákátlegast að innst inni hefði ég alveg verið til í að fara með en uss... ekki segja neinum...

p.s. Mikið var gaman að handboltinn fór vel í dag. Ég hafði ekki taugar til að horfa á hann en sendi strákunum bara baráttukveðjur. Það greinilega dugði!! :o)

Saturday, February 01, 2003

Jæja, Björn bóndi...

...er farinn að hressast. Ætla að kíkja í Smáralindina örstutt í dag og kíkja eftir gjöf handa stúlkunni góðu sem fann hann Nebba minn. Svo get ég farið að hlakka til vorferðar til Stokkhólms....jibbííí!!! Bara tveir mánuðir þangað til við aldagömlu vinkonurnar skellum okkur í helgarferð að heimsækja eina aldagamla vinkonu í viðbót. Ábendingar um góða staði til að heimsækja (veitingastaði og búðir) eru vel þegnar! Lengi lifi samkeppni milli flugfélaga!!!

Thursday, January 30, 2003

Stund milli stríða....

...dagur tvö í veikindum. :o(
Ég er ekki sú þolinmóðasta þegar ég þarf að liggja í bælinu. En þó voru tvær litlar fréttir sem glöddu mitt hjarta í morgun. Önnur af því að litla tískudrósin innra með mér fagnaði ákaft og hin af því að ég þreytist seint á því að hlæja að sumu fólki (Já, ég er svona vond). Sú frétt birtist í Mogganum líka en þar sem ég fann hana ekki á netútgáfunni þá fer efni hennar lauslega hér: Hin eina sanna Britney Spears nennti greinilega ekki að hanga yfir nýjustu mynd Robert Downey's jr. á Sundance kvikmyndahátíðinni og þóttist þurfa að fara eitthvað annað eftir að 45 mín. voru liðnar. Síðar lét þessi elska hafa eftir sér að henni hafi þótt myndin skrítin, eins og reyndar Sundance hátíðin öll því "myndirnar hérna eru allar skrítnar, það þarf að hugsa svo mikið við að horfa á þær"....... Alveg frábær frétt og mun stytta mér stundir í rúmlegunni.... Takk Britney!!

Tuesday, January 28, 2003

Við hjónin...

framkvæmdum alveg hávísindalega könnun í gær. Athugað var hvort okkar gerði "kossahljóðið" þegar við kyssumst. Það kom í ljós að við gerum það bæði. Þið hefðuð átt að sjá svipinn á bóndanum þegar ég kyssti hann og gerði ekkert hljóð. Honum fannst þetta eitthvað skrítið og prufaði að kyssa mig aftur. Og þá sprungum við úr hlátri! Ég hef sjaldan tekið þá í eins skemmtilegri rannsókn! Alveg frábær mánudagsskemmtun. Mæli með því að þið prufið þetta....hvort ykkar framleiðir hljóðið? :o)

Monday, January 27, 2003

Oh, ég er orðin ansi pirruð...

...fékk lykilorðið að Íslendingabók í pósti í dag og settist spennt fyrir framan tölvuna. En ég kemst hvorki lönd né strönd! Það er greinilega mikið álag og ég fæ alltaf upp einhverja fjandans error-meldingu. Ég sem ætlaði að fara að forvitnast. Fussumsvei!
Ég þoli ekki...

...slappar bíómyndir!

Varð fyrir svolitlum vonbrigðum í gær með þessa mynd. Hélt að hún væri betri. Varð líka fyrir vonbrigðum með handboltaleikinn gegn Þjóðverjum. Það var auðséð að Íslendingar eiga að geta unnið þetta þýska lið. En í lokinn "misstu þeir haus" og gerðu gloríur sem ekki eiga að sjást. En á jákvæðu nótunum þá var þetta alvöru handbolti á köflum. Enda alvöru lið að keppa, ekki eitthvað þróunarlið með sirkustrúðum. Ég sá á heimasíðu þýska handknattleikssambandsins að þeir eru drullufegnir að sleppa við að mæta Spánverjum í milliriðlum. Hmmm...líst ekki alveg nógu vel á þetta...

Saturday, January 25, 2003

Alveg brill.....

Hann má eiga það hann Ármann að hann er fjandi góður penni. Mig verkjar enn í kinnarnar af hlátri. Kíkið einnig á pistilinn um goðafræðina! (oftast er ég nú ósammála Múrverjum, en þetta er gott "stöff"). Það var einnig skemmtilegt viðtal við hann í Lesbók Moggans í morgun. Og svo var hann víst að hætta að blogga um daginn og ríkir sorg í bloggheimum yfir því. En þá er bara að heimsækja Múrinn reglulega.
Það er alveg ekta fjallaveður í dag....

Heiður himinn og falleg birta. en því miður þarf bóndinn að vinna í dag. Og á morgun er spáð rigningu... :o( Þá bara lætur maður sig dreyma þar til maður kemst út fyrir borgarmörkin næst og horfir á handboltann.... Aðalferðatíminn er að ganga í garð í vetrarjeppamennskunni...sem þýðir að helgarnar eru upppantaðar í fjallaferðir langt fram á vor... Gaman, gaman! Ég er alveg með fiðring í tánum, spenningurinn er svo mikill yfir því að komast á fjöll bráðlega...

Friday, January 24, 2003

Mikið er ég nú ánægð með þessa frétt:



Það er kominn tími til að skerpa betur á þessu, ég þoli nefnilega fátt eins illa og kynjakvóta. Ég hljóma kannski eins og biluð plata, en ekki vildi ég vera ráðin í starf með þeim rökum að ég sé kona. Svokölluð "jákvæð" mismunun (þvílíkt orðskrípi!) er algjör tímaskekkja og er niðurlægjandi fyrir konur. Á meðan þær líta á sig sem minnihlutahóp þá haga þær sér eins og minnihlutahópur. Jamm. Segi ekki meir um þetta í bili, en mun örugglega láta í mér heyra um þessi málefni síðar. It's a promise. :o)
Dagurinn í gær endaði vel...

....fyrst fannst Nebbi. Þessi elska var á þvælingi einhvers staðar lengst í burtu og rataði greinilega ekki heim. Tólf ára dóttir nágranna míns, sem Nebbi heimsækir reglulega til að leika við ásamt tæplega þriggja ára gömlum tvíburasystrum (m.a. til að leyfa þeim að klæða sig í dúkkuföt), fann hann þegar hún var á leiðinni á fótboltaæfingu. Þekkti Nebba og náði honum og sendi pabba sínum sms sem hljóp yfir í geðshræringu og tilkynnti að Nebbi væri fundinn!! Við hjónin brunuðum niður í íþróttahús og þar beið hann í fanginu á bjargvættinum sínum. Hann var svangur, þvældur og skítugur en eftir smá dekur og þvott svaf hans eins og steinn í alla nótt, aðallega í hálsakotinu á mér. Malandi af gleði. Og ég hraut af gleði sjálf.... :o)
....svo fór ég í jóga og náði þvílíkri slökun í lokin að ég var dofin í fingrum og tám. Mjög notalegt.
....svo unnu Íslendingar Portúgala í handbolta. Ég náði síðustu mínútunum.....valhoppandi fyrir framan sjónvarpið. Sætur sigur! Nú er bara að leggja Katarbúa á morgun...
....síðan uppgötvaði ég að það væri alveg að koma helgi, einn dagur enn í vinnu og svo leti í tvo daga. zzzzzzzzzzzz

Bara nokkuð fínt kvöld!!

Thursday, January 23, 2003

Skemmtilegt próf!

Giskaðu á hvort þessar séu "female" eða "shemale" (þ.e. karlar). Ég var bara nokkuð nösk! Var með 14 réttar af 16. En þið? Látið mig vita!