Friday, January 16, 2004

Þolraunir...

....Ef það er eitthvað sem ég þoli ekki þá er kvef þar efst á lista. Svona týpískt kvef með hálsbólgu, slappleika og nefrennsli. Þess vegna geng ég um með lotningarsvip meðfram hillununum með kvefdópinu í amerísku matvörubúðunum. Svo strýk ég léttilega yfir pakkningarnar þar til augun eru fönguð af dýrðlegum loforðum um betra líf með kvefi. Þar er nefnilega að finna svona lyf sem láta manni bara líða þokkalega þegar maður er gjörsigraður af hori. Svo kaupi ég nokkra pakka og tek með mér heim. Fel þetta inn á milli nærfatanna frá Victoriu Secret og ilmkertanna frá Pottery Barn ásamt öðrum varningi sem ég ágirnist í amerískum verslanakeðjum á borg við Target, Wal-Mart og Pier1. Búin að rífa alla verðmiða af. Treð kvefmeðulunum oní sokkapakka með 20 sokkum sem kostuðu tvo dollara eða þ.u.l. Svo líður og bíður og ég fæ svo sem ekkert alvarlegt kvef. Hef eiginlega ekki fengið slíkt síðan ágætur vinur minn smyglaði mér í hálskirtlatöku þrátt fyrir að heimilislæknirinn teldi ekkert að þessum aðskotahlutum í hálsinum á mér. Og svo dreifi ég þessu til ættingja og vina. Er mjög vinsæl fyrir vikið. Lauma að þeim nokkrum "Tylenol Flu" og "Vicks" hóstamixtúru og svo kemur að því að ég þurfi þetta sjálf. Þvílík unun. Gat farið í matarboð í gærkvöldi án þess að deyja fyrr en 4 tímum eftir að ég tók inn töflurnar. Gat hlegið og borðað án þess að þurfa að snýta mér á 5 mínútna fresti. Kaninn veit alveg hvað hann er að gera. Þessar kveftöflur lækna ekkert, þær bara láta manni líða betur á meðan maður gengur í gegnum horpest frá helvíti. Hef ekki skilið af hverju íslensk lyfjafyrirtæki hafa ekki fundið upp eitthvað svipað. Nezeril hvað!
..

Thursday, January 15, 2004

Oj bara.....

....Við fórum í sund systurnar í fyrradag í hádeginu. Svo sem ekkert merkilegt (þrátt fyrir að við syntum 400 m og vorum ógurlega stoltar af okkur). Nema hvað að við fengum báðar kvef og hálsbólgu og sér ekki fyrir endann á því. Ég sit hérna í vinnunni með hausverk og hálsbólgu og snýti mér á 5 mínútna fresti. Við fórum í Laugardalslaugina og laugin og búningsklefarnir voru vægast sagt ógeðslegir. Allt grútskítugt og að drabbast niður. Og laugin sjálf var ekkert voðalega geðsleg. Kannski þess vegna sem við erum svona slappar, allt morandi í sýklum? Reyndar hallast ég nú að því að við höfum bara ofkælst. En samt sem áður, það er hneisa hversu skítugt allt var þarna, það var t.d. þolraun að fara þarna á salernið. Ég fer oft í sund í lauginni í Garðabæ, þar er allt annar þrifastaðall greinilega. Allt svo hreint og bjart og fínt, þrátt fyrir að laugin sé komin til ára sinna.
Jamm, þetta var nöldur dagsins. *atsjú!*
..

Monday, January 12, 2004

og af því að ég er byrjuð...

...þá er bara best að halda áfram. Bóndinn er að elda og kakan er að kólna. Ég ætlaði nefnilega að deila með ykkur lesefninu á náttborðinu. Af því að þar er svo móðins að segja alltaf frá því hvað maður er að lesa. Nú, í fyrsta lagi er það nú Biblían eina sanna. Ástæðan er fyrst og fremst sú að undanfarið hef ég verið að lesa tvær bækur sem vitna mikið í þessa bók allra bóka. "DaVinci-lykillinn" og svo "Left behind". Flestir þekkja til þeirrar fyrri en sú síðari er ekkert síður spennandi og tilheyrir seríu sem systur minar duttu í og bentu mér á að lesa. Ég veit reyndar ekki hvort næstu bækur eru eins spennandi, en það kemur þá bara í ljós. Næst á dagskrá er bók sem ég fékk í jólagjöf frá vinkonu minni en það er "Sagan af Pí". Margir hafa mælt með þeirri bók við mig og því ánægjulegt að fá hana að gjöf. Svo er ég með nokkrar svona bækur sem rata alltaf á náttborðið hjá mér af og til, "Láttu þér líða vel", "Yoga" og "White wines" (fór að sofa heltekin af hvítvínsþrá..). Svo hef ég verið að fletta í gegnum "Úlfar og fiskarnir". Það er mjög róandi að lesa matreiðslubækur áður en maður fer að sofa þó að mér þyki ekkert leiðinlegt að detta oní góða raðmorðingjasögu.. :o) Sef ekkert verr. Aðrar jólabækur hef ég ekki lesið en kemst brátt í eru "Bettý" hans Arnaldar svo og ein sem heitir "Friðþæging" og á að vera góð. Ef ég fæ svona einn og einn "lestrardag", þ.e. ég get hangið í náttfötunum að lesa mestanpart dagsins, þá er ég til friðs í nokkra daga. Jafnvel vikur. Það jafnast fátt á við svoleiðis dag.
..
Jæja, mínir "Hörðustu" aðdáendur...

...hafa krafið mig um bloggfærslu. Ég þori ekki öðru en að verða við þeim kröfum. Annars var ég búin að spekúlera aðeins í því í dag hvað ég ætlaði nú að tjá mig um í blogginu. Það er svo sem ýmislegt. Ég gæti t.d. röflað aðeins um Jón Ásgeir og Davíð. Já, eða Hannes og aðferðafræðina hans. je ræt... nei, vitiði, ég er alveg búin að fá nóg. Hef því snúið mér að kökubakstri. jamm. Er að baka köku og vil monta mig af því að fíni ofninn minn er bara 25 mín. að baka þessa köku en samkvæmt uppskriftinni á hún að vera 36-40 mín. í ofninum. Þið hváið? Er það af því að kakan mín er svona fljót að bakast eða er það af því að ég er að baka klukkan hálfsex á mánudegi? Núnú, það síðarnefnda. Haldiði að ég baki aldrei? Ég sem fékk þennan fína matreiðslubókastand í jólagjöf og hef ekki getað náð af mér brosinu síðan. Svo er komin ný stöð á Breiðbandið. BBCFood. Bara matreiðsluþættir allan daginn. Ég sem ætlaði að segja upp Breiðbandinu (ásamt Mogganum notabene) þessa útmánuði til að spara aurinn. Ég sé mig í anda segja upp áskriftinni núna. Bóndinn mun ekki tala við mig framar. Hann horfir ekki á annað. Ég horfi á hann eins stórum augum og ég get og halla undir flatt til að fá hann til að skipta yfir á Skjá Einn. Ónei. Jamie, Nigella og Ken eða hvað sem þeir allir heita þessir kokkar, skulu fá að tala áfram um hversu febjúlös og vonderfúl allur maturinn er sem þeir eru endalaust að smakka á. Svo er þarna ein nafna mín. Soldið skemmtilega skrítin með svaðalega eyrnalokka.

Já, af hverju ég er að baka já. Það er nefnilega runnin upp stór dagur. Smiðirnir, sem ég hef beðið eftir síðan í fyrra ætla að koma á eftir og mæla fyrir stiganum. Stiginn upp á milliloftið. Loksins. þetta kannski þýðir að ég fæ efri hæðina í notkun fyrir næstu jól. Glæsilegt. (ég er farin að gera litlar kröfur eins og þið sjáið). Og af því að þeir eru líka vinir mínir, þá fá þeir köku. Þá vilja þeir kannski koma aftur. Beggi ætlar nefnilega að lofa þeim gúrmei-máltíð líka. Okkur skal takast ætlunarverk okkar. Leiðin að sjónvarpsholinu á efri hæðinni er í gegnum maga smiðsins. Jamm.
..

Wednesday, January 07, 2004

Áramótaheitin...

....er fljót að falla í gleymsku. Nú er komin "næsta vika" og af þessum 3 atriðum á listanum frá 2. jan. þá hef ég staðið við:

1. Búin að finna staðinn en á eftir að fara og kaupa kort.
2. Hef ekki farið einu sinni út að ganga síðan 2. janúar sl.
3. Labbaði upp í fyrsta sinn í morgun. Dó á 5. hæð.

...og svo var dreift súkkulaði til okkar allra starfsmannanna í gærkvöldi. Getiði tvisvar hversu fljót ég var með minn mola....

Annars er ég nú að reyna að vera dugleg. Tók m.a. með mér gulrætur í morgun til að narta þegar súkkulaðiþörfin kemur yfir mig. Og er bara búin að drekka 2 kaffibolla, einn í morgun og einn áðan eftir matinn. Svo er að byrja átak hérna í vinnunni, það kemur einhver og fitumælir allt starfsfólkið ef það vill, svo ætla allir að vera duglegir að hreyfa sig og borða hollan mat og síðan er árangurinn mældu í lok mars held ég. Og veitt verðlaun. Þótt ég geri mér engar vonir um sigur þá veitir þetta ákveðið aðhald....vona ég! :o) Þessi kíló sem heimsóttu mig yfir jólin mega alveg fara að koma sér burt aftur....
..

p.s. búin að fara og sjá Myndina. Hún er æði. Væri alveg til í að sjá hana aftur...
..

Friday, January 02, 2004

Þá er komið nýtt ár...


...og ég þarf að muna að skrifa '04 í stað '03! Meira ætla ég nú ekki að leggja á mig í bili á nýju ári. En svona til að minna sjálfa mig á síðari tíma fyrirheit (lesist: í næstu viku) kemur hérna smá listi:

1. Að finna nýja stað til að stunda jóga á í grennd við nýja vinnustaðinn.
2. Að fara út að ganga eigi sjaldnar en 3svar í viku á kvöldin.
3. Að labba a.m.k. einu sinni á dag upp stigann í vinnuna, þ.e. alla leið upp á 7. hæð!

Önnur átök og fyrirheit verða að bíða síðari tíma þegar sólargangurinn lengist og peningaveskið fitnar örlítið meir.

..

Tuesday, December 30, 2003

Jaaháá......




Áhugavert...
..

Monday, December 29, 2003

Södd, sæl og kílói þyngri....

Þessir hátíðisdagar hafa verið mjög notalegir. Akkúrat það sem ég þurfti. Friður og ró, myrkur og kertaljós og góður matur. Suma morgna vaknaði ég rúmlega átta, fór fram og hellti mér upp á kaffi eða sótti ískalt jólaöl og skreið aftur uppí og fór að lesa. Ég er að tala um fullkomna sælu. Ekki síst ef eitt og eitt Lindor súkkulaði fékk að fljóta með. Og núna, þegar ég hefði átt að vera að vinna er ég nú samt að vinna en bara heima hjá mér. Lofa ber nútímatækni sem gefur þann möguleika að tengjast vinnunetinu í gegnum fartölvuna heima hjá sér! Sérstaklega þegar maður er kvefaður og slappur og með eyrnabólgu! Og úti er bara hríð.

Ég var sérlega ánægð með jólagjafirnar mínar þetta árið. Bóndinn klikkaði ekki frekar en vanalega í þessari deildinni og systur og foreldrar gáfu okkur snilldargjafir, sem og vinkonur mínar. Fékk m.a. matreiðslubókarstandinn úr Pipar og salt sem mig hefur langað í lengi! Og mjúka flíspeysan frá Ameríku er svo mjúk að ég vildi helst aldrei fara úr henni. Andardúnssængurnar frá mömmu og pabba virðast gífurlega notalegar og ekki seinna að vænna að fá nýjar sængur þegar þær gömlu passa varla lengur í sængurverin, þær rýrna víst svona í þvotti. Svo á ég eftir að lesa eina bók (Söguna af Pí) sem hefur vakið mikla lukku innan fjöslyldunnar, allir búnir að lesa hana þar og ég bíð spennt eftir að byrja á henni líka.

Og enn er hátíð framundan. Og þá er ég ekki bara að tala um gamlárskvöld og nýársdag....heldur líka það sem ég hef beðið eftir lengi, lengi... Hann Aragorn er nefnilega mættur á svæðið á ný. Við hjónin erum búin að vera í stífu prógrammi sl. daga. Horfðum á The Fellowship á annan í jólum og svo Two Towers í fyrradag. Aðeins að rifja upp söguna. Verst að ég er ekki með bókina sjálfa, á hana ekki. Fékk hana bara lánaða á sínum tíma. Þetta verður hátíðleg stund að fara og sjá síðustu myndina í þessari snilldartrílógíu. Jákvæð kvikmyndagagnrýni spillir ekki fyrir. Mér líður eins og ég eigi eftir að opna einn stærsta jólapakkann! Það er bara spurning hvenær við komumst. Vonandi sem fyrst!!!

..

Wednesday, December 17, 2003

Happasending!

Við fengum lítinn pakka inn um lúguna í gær, merktum tryggingarfélaginu okkar. Í ljós kom svona lítill pakki sem líktist mikið þessum týpísku íslensku lyfjaumbúðum og innihélt hann rafhlöðu fyrir reykskynjara. Ég spurði Begga hvort við þyrftum á þessu að halda, þ.e. hvort það þyrfti eitthvað að endurnýja rafhlöðu í öðrum hvorum reykskynjaranum okkar og hann var fljótur til svars, nei,nei, í góðu lagi með okkar reykskynjara! Þannig að ég setti þetta upp í hillu. Síðan datt Begga í hug að tékka nú á þessum sem er við eldhúsið og kom þá í ljós að rafhlaðan var ekki í sambandi. "Aahh..." hugsuðum við bæði. "Líklega hefur skynjarinn farið af stað í einhverri eldhúsbrælunni og við kippt rafhlöðunni úr sambandi en svo gleymt að laga hana aftur". Mér fannst gjöfin frá tryggingunum strax vera búin að koma að góðum notum, við höfðum allavega gert reykskynjarann virkan á ný!
Stuttu síðar heyrðist píp. Og svo aftur nokkrum mínútum síðar. Þá mundi ég af hverju reykskynjarinn var ekki í sambandi. Rafhlaðan hafði klárast fyrir löngu (svo löngu að ég man það ekki....) og við alltaf á leiðinni að kaupa nýja. Þvílíkur slóðaskapur. Það hefði getað brunnið ofan af okkur í millitíðinni. Takk kæra tryggingarfélag, þrátt fyrir gífurlegt okrið að öðru leyti þá komuð þið að góðum notum þarna!
..

Friday, December 12, 2003

Ekki svo slæmt!

Ég er alveg dottin oní svona próf......alveg týpískt - enda er ég að reyna að lesa undir þýskupróf... :o)


According to the "What Weather Phenomenon am I?" quiz:




My forecast says you'll check it out! Click here!



..

Wednesday, December 10, 2003

Ja hérna hér....




..
Tvær vikur til jóla???

Ég trúi þessu ekki. Ég er ekki enn byrjuð á jólakortunum sem eiga að fara út til Evrópu og Bandaríkjanna. Hvað þá að gera eitthvað annað svona jólalegt. Er bara að vinna og hníga niður af þreytu allan sólarhringinn. Ég ætla aldrei aftur að byrja í nýrri vinnu svona örfáum mánuðum fyrir jól. Pakkinn til litlu systur í Flórída fær far með DHL, tekur tvo daga. Ég elska DHL. Þeir bjarga svona slúbbertum eins og mér. Þessar eru með allt á hreinu varðandi jólin, ég er að hugsa um að taka þær til fyrirmyndar nema hvað ég er ekki alveg eins úthaldsmikil í drykkjunni. Þarf líka nefnilega alltaf að keyra heim í sveitina á kvöldin. Og svo VERÐ ég að fara að lesa undir elsku bestu þýsku málfræðina. Ætlaði t.d. að lesa í gærkveldi. en það fór á annan veg. Kom seint heim, borðaði, horfði á hina frábæru fimm og lognaðist svo út af. Enda vöknuð eldhress fyrir klukkan sex í morgun! Reif moggann úr höndum blaðberans, ég held hann hafi næstum því fengið hjartaáfall.

Litla frænka á afmæli í dag. Er sex ára. Það birtist mynd af henni í mogganum í morgun, bara alveg óvart. Hún myndast vel sú stutta og heldur núna að þetta hafi eingöngu verið vegna þess að hún á afmæli í dag. Þótti því lítið til þess koma, frekar bara alveg sjálfsagt. :o) Það verður gaman að velja eitthvað handa henni í afmælisgjöf, maður bara klípur slatta af árum (segi ekki hversu mörg) af aldrinum og setur sig í stellingar. Mikið til af skemmtilegu dóti!
..


Monday, December 08, 2003

Úbsí....

...síðasti dagur til að skila af sér jólakortum til landa utan Evrópu er í dag, 8. des. Heyrði þetta á leiðinni í vinnuna í morgun og áttaði mig á því að ég hef ekkert hugleitt þetta. Ég sendi yfirleitt um 12 jólakort til Ameríku. Eins gott að fara að prenta út jólakortalistann....

Annars var ég að fatta að ég var bara soldið dugleg um helgina - já eða í gær. Laugardagurinn fór í svona léttvínsþynnku.... en í gær bakaði ég sörur með systur minni og í gærmorgun gerði ég svolítið jólalegt í eldhúsinu, setti jóladiskamottur á borðið og hengdi upp stjörnuseríuna mína. Setti upp smá jólaskraut og komst í þvílíkt jólaskap þar sem ég sat þarna við eldhúsborðið með kaffibollann og sunnudagsmoggann. Algjör nautn - burtséð frá því að mér finnst mogginn glataður þessa dagana og er mikið að spá í að segja upp áskriftinni, kannski bara vera með helgaráskrift. Já, þetta eru stór orð úr munni fréttasjúklingsins og moggaaðdáanda númer eitt.

Já, og fyrst ég er byrjuð á bloggfærslu, mikið lifandi skelfingar ósköp fer þessi umræða um fjárhagsvanda Landspítalans í mínar fínustu. tja, kannski ekki umræðan sem slík - frekar að það þurfi að vera að ræða þetta yfirhöfuð - það á ekki að vera svoleiðis í velferðarríki! Þetta er það sama og var/er að gerast með háskólann (HÍ). Þegar opinberar stofnanir hafa búið við fjársvelti í mörg ár og á hverju einasta ári vantar stórfé, bara til klára ýmis föst skylduverkefni, þá hlýtur það að segja sig sjálft að eftir nokkur mögur ár hefur viðkomandi stofnun reynt að hagræða eftir fremsta megni. Og þegar slíkt liggur fyrir og samt vantar fjármagn - er þá ekki augljóst að það þarf bara meiri fjármagn? Það er bara svo einfalt!?!! Þessir ágætu ráðamenn verða bara að horfast í augu við það að annað hvort ætla þeir að hugsa um veikt fólk eða bara að sleppa því. Því eins og ástandið er í dag, sbr. unga móðirin í Mosfellsbæ með litla drenginn með Goldanhar-heilkennið sem lendir einhvern vegin á milli "kerfa" og allir þvo hendur sínar (skamm Mosó og Jón ráðherra! fussumsvei! Þið ættuð að skammast ykkar!), þá bara fúnkerar þetta alls ekki! Só sorrí!

Sko, nú vélritaði ég í mig hita. Gott, er nefnilega á leiðinni heim, fyrst fer í ég afmæli til tengdamömmu og svo upp á Skaga - er boðin á jólafund Vesturlandsdeildar Ferðaklúbbsins 4x4.
..

Wednesday, December 03, 2003

Fussumsvei....

....allur snjórinn bara horfinn á ný. Slagveður og rigning í staðinn. Oj bara. Ef ég hefði ekki verið á fjöllum sl. helgi og fengi frábært veður, sól og útsýni yfir snævi þakta tinda og hvítar sléttur, hefði líklega haldið að snjórinn í síðustu viku hafi verið bara draumur.

Laugin á Hveravöllum var notaleg um helgina og það var gaman að fá smá sólskin í kroppinn síðdegis á sunnudeginum. Það hefði mátt vera meiri snjór alls staðar, steinarnir stóðu vel upp úr og gátu verið stórhættulegir dekkjum og hásingum eins og sumir fengu að kynnast. Við, sem betur fer, sluppum ósködduð að þessu sinni, Snjófusinn líka.

Heima beið okkar hálfdruslulegt heimili og ekkert jóló. Ég stefni á að bæta úr því núna í vikunni - einhvern tímann þegar ég uppgötva nokkra aukaklukkutíma í sólarhringnum..... Ef einhver vogar sér að segja við mig að hann sé búinn að kaupa allar gjafir og baka og þrífa, þá verður viðkomandi kyrktur á staðnum. Mín jól verða svona ekta "Ajax-í-tusku-á-ofni"-jól.
...

Friday, November 28, 2003

Jibbbbbííííííííííí!!!!!!!!!!!!!!!!!........

Svona á þetta að vera! Snjó í fjöllinn, vielen Dank!
..

Thursday, November 27, 2003

Fréttablaðinu....

..hefur þótt mikið um þá frétt að efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra skyldi fá auknar fjárveitingar því fréttin birtist tvisvar í blaðinu í morgun...
Lúxus....

...að geta keyrt bílinn beint út úr bílskúrnum í þessum kulda! Ég fékk náðarsamlegast að setja litla kút inn í bílskúrinn í gær. Snjófus fékk að víkja út í innkeyrsluna. Enda tekur hann sig miklu betur út með grýlukerti og snjóskafla á húddinu en litla Corsan....segi ég.. :o)

Monday, November 24, 2003

Það snjóar!!!!

Það var komin hríð þegar ég var á leiðinni úr þýsku og aftur í vinnuna. Ég keyrði því alsæl og óskaði þess heitt að þetta héldi svona áfram. Helst í nokkra daga, jafnvel vikur. Snjófus bíður spenntur inni í bílskúr, búinn að vera í smá "snyrtingu" og dekri í nokkra daga. Og verður eitthvað áfram fram að komandi helgi. Þá á að reka trýnið út fyrir borgina og inn á hálendið. Það skal tekið fram að ekki verður farið eftir veðurspám á mbl.is. Ég hef komist að því að það er ekkert að marka þau veðurkort sem þar birtast. Það er jafnvel ekki hægt að treysta því að veðurspáin á laugardagsmorgni sé rétt fyrir þann dag. Hvorki á sumrin né á veturna. Svo er verið að fussa yfir því þegar fólk lendir í villum og vandræðum til fjalla. "þessi hefði nú átt að fylgjast með veðurspám og haldið sig betur heima". Já, já, einmitt það. Eftir að Halo hvarf þá hefur ekki verið hægt að átta sig á veðráttunni næstu daga nema etv. að vera haldinn skyggnigáfu. Ég hef lent í því að halda til fjalla af því að veðurspáin er alveg þokkalega góð, enginn stormur eða hríð í kortunum, bara svona aðgerðarlítið veður og endað í þvílíkum hremmingum að ferðalagið varð meira og minna að "stikuferð" (rýna út um bílgluggann að leita að næstu stiku). Hef síðan þá alltaf haft með mér nóg af lestrarefni og nesti sem ekki þarf að hita eða matreiða. Að ógleymdri "freschettunni" minni. Svo ég geti pissað standandi eins og strákarnir. Það er nefnilega vont og kalt að bera bossann í skafrenningi..... En allavega, þá lýsi ég frati á mbl.is veðurspána. Siggi stormur er þó skárri þótt hans vegna hafi ég rokið í Húsafell í sumar og endað í útilegu eina mestu rigningarhelgi fyrr og síðar. Hann hefur líka vandað sig eftir þann skandal.
En varðandi komandi helgi, þá byrja ég fyrst að kíkja fyrir alvöru á spárnar á fimmtudagskvöldið. Og vonandi sést bara snjór eða frost í kortunum...allavega svona fram í apríl? Er það ekki bara ásættanlegt? :o)
..
Páll Óskar og Mónika....

....voru alveg frábær í gær. Og gestir þeirra ekkert síðri. Diddú söng eins og engill að venju og Ave Maríurnar sem hún söng í "skiptihléinu" hans Palla voru gríðarlega fallegar. Síðan voru þarna söngsveitin Hljómeyki og stjórnandi þeirra er Hreiðar Ingi, sem á heiðurinn af mörgum lögum Palla og Móniku. Þessi ungi maður er greinilega snillingur. Mitt fyrsta verk í dag verður að kaupa diskinn þeirra. Það var of mikil biðröð í gær eftir tónleikana, ég nennti ekki að bíða. Ég fæ ennþá sæluhroll við tilhugsunina um tónleikana, lögin voru algjört eyrnakonfekt! Ég hlakka strax til að leggjast í sófann heima með smákökur í skammdeginu og slaka á og hlusta á þennan geisladisk. Það er eitthvað svo róandi við hljómana úr hörpunni...
..

Sunday, November 23, 2003

Kisur, föndur og sunnudagsleti...

Það er nýr heimilisgestur byrjaður að mæta í morgunkaffi hérna. Veit ekki hvað hann heitir, en er ósköp ljúfur og angar eins og rósablöð. Þetta er ekki Gormur Grámann, bestir vinur Nebba, úr húsinu á móti, sem þykist eiga heima hérna, heldur einhver nýr kettlingur. Kom hérna inn í fyrrakvöld, malaði eins og díeselvél. Var vísað pent á dyr út í kuldann en var mættur hérna í morgunkaffi í gærmorgun, ferskur og glaður. Sá til hans aftur í morgun en var nógu fljót að loka glugganum. Ég er hætt að skilja þetta. Stendur á skilti hér fyrir utan á kattamáli að hér búi voða góð kona sem líkar vel við ketti og kann að klóra þeim á bakvið eyrun? Og eigi harðfisk uppi í skáp? Ég fer að halda það eða að Nebbi Nautnaseggur er svona gestrisinn og býður oft heim kunningjum sem hann hittir á förnum vegi..... Og þetta eru ekkert einhverjir úfnir skítugir fressarar? Neinei, allir voða ljúfir, góðir og hreinlegir heimiliskettir sem greinilega lúra innan um ilmandi þvott á sínu heimili. Eru bara að droppa inn í smá klór og klapp. Gamla geitin, sem notabene átti 10 ára afmæli í gær, og Sunna stresspersi eru alveg að fara á límingunum yfir þessum tíðu heimsóknum...

Annars er ég alveg hryllilega löt núna. Kannski skiljanlegt þegar maður situr að sumbli fram eftir nóttu. Það var alveg virkilega gaman í gærkvöldi. Flugsveitin hittist í gær hérna í sveitinni, hinn mánaðarlegi matarklúbbur ekta jeppasjúklinga. Eins og gefur að skilja var mikið rætt um þennan vetur og því spáð að hann verði ofboðslega snjóþungur...vonandi. Svo var aðeins minnst á 44" dekk og milligíra og jeppategundir og ég er ekki frá því að það hafi gripið um sig smá fjallafiðringur. En svo í morgun var bara rigning og slagviðri. Oj bara. En kannski snjóaði í fjöllin á meðan það rigndi hér?

Ég þarf að fara að klára þetta jólakortaföndur. Ekki nema ég geri eins og í fyrra, öööörfáir útvaldir fá heimagerð jólakort...... :o) Spurningin er...hvort á ég að vinna eða föndra..hmmm...erfitt val. Eða þannig. Svo get ég náttúrulega líka bara lagst aftur í bólið og lesið bókina hans Michael Crichton, "Prey". Orðin alveg allsvakalega spennandi sú bók. Ég held ég eigi meira að segja slatta af súkkulaði til að maula með bókinni. Og kaldan reyktan hátíðarkjúkling. Og nýja jólamaltogappelsínið frá Egils. Hmm...mér sýnist orð dagsins vera: leti. :o)

Og í kvöld erum við að fara á tónleika með Páli Óskari, Diddú og Móniku. Ég hlakka mikið til. Sá þau hjá Gísla Marteini um daginn og þetta lofar góðu. Svo eru tónleikarnir í Háteigskirkju. Ekki leiðinlegt að fara þangað á tónleika, hún er svo falleg.

Sko, búin að blogga helling. Segiði svo að ég sé löt í dag! hah!
..