Friday, February 27, 2004

Namminamm....

...ég er að fara á matarsýninguna á eftir... :o)
..
Spánardraumar...

Síðustu daga höfum við legið yfir myndum og upplýsingum um Spán, nánar tiltekið Andalúsíu eða Costa del Sol. Hugurinn er kominn hálfa leið en restin mun ekki fylgja með fyrr en síðsumars, ef af ferðinni verður. En svona ferðalagapælingar lyfta manni heldur betur upp um hávetur. Og svo lengist sólargangurinn með hverjum deginum og ég er ekki frá því að smá vorfiðringur sé farinn að gera vart við sig einhvers staðar innst í kroppnum. Og undanfarin kvöld hef ég sofnað út frá hugsunum um íslenskar sumarnætur og spænskar sólarstrendur.
Mig grunar að bráðum verði fiðringurinn óbærilegur. Ætli þá sé ekki best að virkja hann í smá vorhreingerningu? Nei, varla. Hlýt að finna önnur skemmtiegri not fyrir fiðringinn. T.d. að leggjast í kaffihúsahangs og búðarráp.
..

Wednesday, February 25, 2004

Einhver sem var að leita á Google...

..að fylltum kjúklingabringum endaði hérna á blogginu hjá mér...

Mig minnir að þær hafi líka verið ógurlega góðar hjá mér. Namm. Kannski ég eldi svoleiðis um helgina.

..
Uppáhalds....

Með reglulegu millibili hef ég tjáð mig um uppáhaldssjónvarpsþættina mína. Þessa dagana er úrvalið óvenjugott, ekki síst vegna þess að Skjár Tveir gaf upp öndina og góðir þættir eins og CSI snéru aftur. Sjónvarpsglápið á þessu heimili beinist fyrst og fremst að Skjánum og Discovery (bóndinn getur endalaust glápt á einhverja þætti þar sem menn búa til vélar, bíla og önnur ökufær tæki úr rusli...) en einnig BBC Food. Síðan höfum við af og til horft á alveg kostulega spurningaþætti sem eru á norska og sænska ríkissjónvarpinu en það eru svona þættir sem ganga út á það að tónlistarmenn þurfa að giska á hvaða lög er verið að spyrja um og syngja þau á staðnum. Tvö lið keppa, tveir söngvarar í hvoru liði ásamt liðstjóra sem er píanisti. Við höfum oft velt því fyrir okkur hvernig þessir þættir myndu ganga hérna heima. En uppáhaldsþátturinn okkar er eftir sem áður hommarnir fimm á Skjá einum sem taka streitgæjana i gegn og kenna þeim að klæða sig, elda og raka sig. Þeir eru æðislegir snillingar. En ég held að þeir hafi nóg af "viðfangsefnum" þarna í Ameríku. Þvílíkir lúðar sem þeir eru að fást við. Og draslarar. Og með hroðalegan smekk. Skil ekki að sumir þeirra hafi náð sér í konu yfirhöfuð. Uppáhaldshomminn minn er Carson. Beggi fílar auðvitað kokkinn best. Hárgreiðsluhomminn er sætastur. Danshomminn er væmnastur. Innréttingahomminn er leiðinlegastur en samt ferlega sniðugur.
Svo er það Stjörnusörvævor. Þvílíkt skemmtilegur. Missti reyndar af síðasta þætti en hann er endursýndur um helgina. Ég er ekki komin með neina uppáhaldskeppendur ennþá. Mér finnst svolítið mikið sýnt af sama fólkinu, en eftir því sem þeim fækkar þá fær maður að sjá meira, vonandi. Ég held að stúlkan sem missti mömmu sína hafi verið ein af þeim sem Jeff Probst, stjórnandinn, hafi verið hrifinn af. Hann viðurkenndi í einhverju viðtali að hann hefði af og til hrifist af einhverjum kvenkynskeppanda. Jamm, Sörvævor auðgar líf mitt. Get endalaust pælt í svonalöguðu stundum. En stundum get ég ekki hugsað mér að horfa á svona þætti. Gat til að mynda varla horft á Tristu og Ryan eða þessa tískufyrirsætuþætti. En ef ég sest niður og horfi....þá get ég horft á allt. Skjár einn er með nóg af svona heilalausum þáttum. En þeir eru einmitt málið þegar maður orkar ekkert nema að liggja í sófanum og glápa heilalaus á imbann.
..
Það hlaut að vera...

Þessi frétt skýrir margt.....
..

Tuesday, February 24, 2004

Yeah baby!

Það styttist óðum í að brúnin léttist á allri fjölskyldunni sem húkir hér á eyjunni í norðri. Bráðum kemur litla systir í heimsókn með litlu nöfnu alla leið frá Miami. Við bíðum því öll alveg titrandi af tilhlökkun. Það verður biðröð um að fá að knúsa eðalkrúttið sem sum okkar hafa ekki séð í tæpt ár. Það er langur tími þegar barnið er rétt 17-18 mánaða!
Og svo er það auki bráðsniðugt að nýta sér ferðina til að fá ýmislegt úr henni Ameríku sem ekki er hægt að lifa af án. T.d. undirföt úr Victoria's Secret, sturtusápu úr Bath&Body og föt úr Gap eða Old Navy. Annars væri ég alveg sátt að fá bara mæðgurnar hingað. Annað skiptir engu máli. Þær ætla að koma aftur í sumar, þá með fullmannaða fjölskylduna. Ég er strax farin að hlakka til þá líka.
Spurning um að ég hleypi þeim nokkuð heim til sín aftur... :o)
..

Monday, February 23, 2004

Letihelgi....

Frábært að hafa svona letihelgar af og til. Fara snemma að sofa, hanga, glápa á imbann, lesa bækur, borða góðan mat..... Enda er ég þvílíkt spræk í dag. Eins gott því mánudagar eru yfirleitt alveg stappfullir af fundum, þýskri málfræði, kóræfingu og svo vinnu auðvitað. Og í dag þarf ég líka að hitta fulltrúa verktakafyrirtækisins sem við hjónin keyptum húsið okkar af. Ganga frá afsali, en það hefur dregist í marga, marga mánuði því við erum með langan lista af athugasemdum. Já, ég mun aldrei aftur kaupa af þeim hús, ekki einu sinni hænsnakofa. Óþolandi svona leiðindamál. Það verður ágætt að vera laus við málið...og þá. Sem betur fer er ég endurnærð eftir helgina. Og já, ég fékk blóm og fínan dinner. Svo sem ekkert nýtt því ég á svo góðan mann sem eldar oft fínan mat handa mér. Svo skúraði hann líka. Ég nefnilega skúra ekki. Heimilisstörf eru nefnilega óþolandi.
..

Saturday, February 21, 2004

Blogg letinnar

Var að lesa besta tölvupóst sem ég hef fengið í margar vikur. Hann fjallar um leti. Það allra skondnasta er að allt sem þar kom fram er eins og talað úr mínu hjarta. Ég er nefnilega gífurlega löt manneskja að eðlisfari. Eitt af því fáa sem ég áorka í letiköstum er að lesa. Nenni ekki að borða, tala né fara eitt eða neitt. Eins og bréfritarinn talar um í póstinum þá hlakka ég til að verða gömul og hætt að vinna og get því hangið og glápt út um gluggann eða lesið. Þurfa helst ekki að gera neitt. Og það er svo skrítið hvað tíminn líður hratt í svona letiköstum. Áður en ég veit af er kominn miður dagur og ég enn á náttfötunum, ekkert búin að borða, búin með tvær bækur og hef ekkert áorkað annað en að tékka á tölvupóstinum. Ég elska svona daga. Dagurinn í dag stefnir í einn slíkan, jafnvel þótt ég hafi tekið fartölvuna með mér heim úr vinnunni og ætlað að vinna í nokkra tíma. Er svo sem með kveikt á tölvunni, en á erfitt með að vinna. Alveg nógu erfitt að blogga og vera með kött í fanginu. Ég er ekki það mikil um mig að fartölva og 6 kílóa köttur rúmist vel í fanginu í einu. Ekkert pláss fyrir vinnugögn líka. Af "illri nauðsyn" mun ég því halda áfram að vera löt, krúsa um netið og halda svo áfram að lesa um The overactive imagination of Olivia Joules.
..

Friday, February 20, 2004

Hvaða bók er ég?

Rakst á þessa skemmtilegu könnun hjá henni Nönnu.




You're The Hobbit!

by J.R.R. Tolkien

All you wanted was a nice cup of tea when some haggard crazy old man
came into your life and told you it was time to do something with yourself. Now you're
all conflicted about whether to stick with your stay-at-home lifestyle or follow this
crazy person into the wild. While you're very short and a little furry, you seem to be
surrounded by an even greater quantity of short folks lately. Try not to lose your ring,
but keep its value in perspective!



Take the Book Quiz
at the Blue Pyramid.


Konur og hjónabönd

Það er víst konum til trafala að vera giftar. Hvað þá ef þær eiga börn. Þær fá þá lægri laun en karlarnir sem eru í sömu stöðu, kvæntir og alles. Þetta las ég í mogganum og þ.a.l. hlýtur þetta að vera rétt. Í minni vinnu er ég umkringd kvæntum karlmönnum sem eiga börn. Ég hlýt því að vera með lægri laun en þeir. Og ef ég hef til hliðsjónar aðra könnun sem gerð var fyrir einhverjum árum þá veldur háskólamenntun mín því að launin mín lækka einnig, eða í um 70% af launum karlanna. Ef ég svo bæti við hjónabandinu þá hljóta þau að vera enn lægri prósenta af launum samstarfsmanna minna. Ég hlýt því að eiga rétt á allgóðri launahækkun? Best að bera þetta undir starfsmannastjórann. Ég ætti að geta pantað ferðina út til Spánar bara núna strax um mánaðarmótin.
..

Thursday, February 19, 2004

Jæjajá....

...það eru bara órólegheit í fólki? Ástæðan fyrir bloggleysi er fyrst og fremst tímaskortur ásamt hreinni leti. Þegar ég hef tekið smá pásu yfir daginn sl. 2 vikur hef ég verið að skoða heimasíður ferðaskrifstofanna og ekki nennt að skrifa neinum tölvupóst. Nema einn örstuttan til litlu systur í Flórída. Tek hana fram yfir alla sem ég þarf að skrifa póst. Sorrí, en það er bara staðreynd. Svo nenni ég ekki að kveikja á tölvunni heima nema í ítrustu neyð. Þessar fáu mínútur sem ég hef eytt heima undanfarna daga í annað en að sofa og borða hafa farið í sjónvarpsgláp og umönnun Sunnu kisu. Sjónvarpsglápið er Kiefer Sutherland að kenna og Sunna var í aðgerð síðasta fimmtudag og hefur ekki sleppt af mér loppunni síðan.

Eins og sjá má þá hélt Katla sig á mottunni og lét okkur í friði, ekki síst vegna þess að við komumst ekkert mjög nálægt henni, þ.e. ég sá enga almennilega sigkatla eða neitt annað spennandi. Urðum að fara Fljótshlíðina upp í Hvanngil, bæði vegna ófærðar og veðurhams. Það var allt í lagi, fengum hið besta veður og frábært útsýni og tuttuguogfimmstiga frost. Það var soldið kalt í skálanum en manni hlýnaði fljótt, allavega að innan, þökk sé ýmsum góðum fjallaráðum en það albesta er auðvitað að fara á smá “drekk” eins og nornirnar frábæru kalla það. Ég ætlaði reyndar að vera svolítil fjalladís og ganga þarna aðeins upp á smátind þarna í Hvanngilinu en komst ekki langt. Óð púðursnjó upp í klof og snéri því við og dáðist að útsýninu bara frá veröndinni. Dugði alveg að þessu sinni. Fengum líka fínt veður á heimleiðinni, ég tók fullt af myndum í þessari ferð. Það er nú alveg ferlega fyndið hvað Einhyrningur er eins og tippi í laginu. Ég tók nokkrar myndir og það liggur við að maður þurfi að ritskoða þær áður en ég sendi þær eitthvað. Ég sé barasta varla nokkuð annað en veglegt kynfæri karlmanns. Kannski er það bara ég, næ ekki hugsunarhættinum uppúr ræsinu...

Og síðan hef ég bara verið að vinna. Fyrir utan eitt alveg frábært fertugsafmæli sl. laugardag. Skemmti mér konunglega. Það er miklu meira fjör í fertugsafmælum en þrítugsafmælum. Og svo vígðum við milliloftið sl. sunnudag. Horfðum á sjónvarpið uppi og fengum okkur kaffi og horfðum á útsýnið. Ekki lítið gaman. Og síðan þá hefur semsagt hver laus mínúta farið í að deyfa fíkn. Við gjörsamlega týndum okkur í annarri þáttaröðinni af 24. Þetta eru ekkert smá ávanabindandi þættir. Við urðum alveg að hemja okkur og skammta okkur áhorf. “Ekki fleiri en 2 þætti í einu! Svo horfðum við á fjóra. Alveg óð. Hlakka til þegar númer þrjú kemur út á dvd. Kannski ágætt að við erum búin með alla tuttuguogfjóra þættina. Þá getum við farið að gera eitthvað annað!

..

Friday, February 06, 2004

Svolítið sérstök..

frétt......
Katla kerlingin...

...bíður mín. Ég fæ að heilsa upp á hana í kvöld. Búin að tékka á heimasíðu jarðeðlissviðs Veðurstofunnar. Enginn jarðskjálfti nýlega skráður þar. Mun tékka aftur seinna í dag. Sem og jöklavöktun vatnamælinga Orkustofnunar. Engin óvenjuleg rafleiðni eða vatnshiti. Bara hafa allt á hreinu áður en ég læðist meðfram sigkatli númer fjórtán....

Pakkaði seint í gærkveldi, hef engan tíma í dag. Sem betur fer ætlar bóndinn að versla í matinn. Ég þarf að muna eftir kertum og aukaflísteppi, Hvanngilsskáli er ekki með rafmagni eins og Setrið, skáli 4x4, þannig að það getur orðið kalt og dimmt! Maður á það til að gleyma því – síðarnefndi skálinn er náttúrulega bara lúxushótel á fjöllum. Og svo má ekki gleyma pissugræjunni!!! Þá þarf maður ekki að ofkælast á viðkvæmum stöðum.....

Nú þarf ég bara að halda einbeitingunni og vinna í dag. Eins og þið sjáið þá gengur það vel..... :-/

Tuesday, February 03, 2004

Þriðjudagur til þrautar....

Mér líður eins og það sé kominn föstudagur. Ég held ég fari snemma að sofa í kvöld. Verð reyndar að vinna frameftir í dag en svo mun leiðin liggja beint í náttfötin og upp í rúm... Það er mjög slítandi að vera á mörgum fundum og endalausum hlaupum fram og aftur!
Annars skruppum við á Eyjafjallajökul sl. sunnudag í frábæru veðri. Systir min og mágur komu með á sínum jeppa og voru í fyrsta sinn að keyra á jökli. Það var ekki að sjá, þau stóðu sig frábærlega og bíllinn líka, þótt hann væri bara á 35". Við lentum aftur á móti í vandræðum, það brotnaði eitthvað í framdrifinu og bóndinn mun því eyða vikunni í skúrnum. Því við erum á leið á fjöll aftur á föstudaginn, en þá er framundan þorrablót Flugsveitarinnar og er áfangastaðurinn Hvanngil á Fjallabaki syðra þar sem við munum gista í skála. Ætlunin er að fara Mýrdalsjökulinn, enda er hann vel fær. Fullt af jeppum að keyra hann um síðustu helgi. En svo var ég að hlusta á fyrirlestur hjá Magnúsi Tuma jerðeðlisfræðingi í gærkvöldi sem fjallaði um Kötlueldgos og hvað allt benti til þess að það sé gos í aðsigi. Hann sýndi myndir af sigkötlunum (sem við erum reyndar komin með hnitin af fyrir GPS-tækið og tölvuna) og nú er ég ekki viss hvort ég vilji keyra þetta í myrkri....


Æ, ég þarf að gera eitthvað í þessu kommentakerfi. Þetta er ekki alveg að gera sig..

..

Monday, February 02, 2004

Er að reyna að koma upp nýju...

...kommenta kerfi. Veit reyndar ekki til hvers, það var ekki eins og það gamla væri eitthvað notað... en ég veit ekkert hvort og hvenær það virkar. Ég er enginn snillingur í html, jafnvel þótt það sé bara "copy-paste"!
..

Saturday, January 31, 2004

Það er eins gott...

...að veðrið verði eins gott á morgun og svo aftur um næstu helgi. Því þá ætla ég á fjöll.... það er erfitt að vera að vinna í dag...uppi á 7. hæð með útsýni yfir allt. Ef þið vitið það ekki þá er heiður himinn og fullkomið vetrarveður. Jújú, skítkalt, en þá bara klæðir maður sig vel. Á morgun ætla ég að kippa með mér skíðunum og fara í smá jöklaskíðaleik. Drekka heitt kakó og borða baguette-samlokur, helst uppi á jökli - annars Skjaldbreið. Skíða svo niður. Þeysa aftur upp á jeppanum og njóta þess að sjá í allar áttir.
Næstu helgi erum við Flugsveitarfólk að fara í Hvanngil og ætlum yfir Mýrdalsjökul, en ekki upp Fljótshlíðina. Ekki segja mömmu. Hún bara hugsar "Katla!" Og hefur áhyggjur. Hún er líklega ekki enn búin að ná sér síðan um árið þegar hún hringdi til að vara mig við Heklugosi og vildi vita hvar ég væri stödd. "ég var að keyra framhjá Heklu, af hverju viltu vita það?" Þá átti fjallskömmin sem sagt að gjósa eftir kortér... :o)
..

Thursday, January 29, 2004

Veðrið úti núna...

...er að ganga frá mér. Ef ég fengi að ráð þá myndi ég bruna heim, pakka dótinu, skíðunum og karlinum í jeppann, koma við í gúrmei-búð og ríkinu og svo bara beint á fjöll. Fara á Hveravelli yfir jökul og láta líða úr mér í lauginni eftir góðan mat og gott hvítvín. Láta ekki sjá mig í byggð fyrr en á mánudaginn. Þetta er sko veður til að þeysa í gegnum púðursnjóinn....ohhh.....
..
Enn og aftur...

..björguðu nornirnar deginum. Þær eiga afmæli í dag og eru að rifja upp "best of" bloggin sín. Ég er enn hlæjandi. Veit ekki hvað það segir um mig. Get bara ekki að því gert. Húmorinn þeirra er bara snilld. Bíð spennt eftir "part tú".
..

Wednesday, January 28, 2004

Jóga...

...er æði. Og að geta farið í jógatíma í sama húsi og maður vinnur í er enn betra. Svo fer maður upp í mötuneytið og fær sér að gott að borða. Enda sit ég núna alsæl með lífið og tilveruna fyrir framan tölvuskjáinn eftir góðan jógatíma og flotta máltíð. Reyndar fannst mér nú alveg yndislegt að fara í jóga úti á Álftanesi á kvöldin, heyra í sjófuglunum og briminu og vera 2 mínútur á leiðinni heim. En því miður hef ég ekki getað komist núna eftir áramót, það hittir svo illa á. Sá jógakennari er reyndar alveg frábær, þannig að ef þið eruð á Hafnarfjarðarsvæðinu og nágrenni þá mæli ég með henni. Ég fer hiklaust til hennar aftur þegar ég get. En þangað til skokka ég niður á 4. hæð hérna í vinnunni og fer í Fjallið og Hálfmánann og anda Kabbalabati-öndun og slaka svo á í Sawasana.... Gerist ekki betra. :o)
..

Tuesday, January 27, 2004

Hún Nanna nefnir það að það séu flestallir frekar litlausir í klæðnaði þessa dagana. Ég er hjartanlega sammála henni. En ég ákvað að gera smá uppreisn og mætti í eldrauðu peysunni við svörtu dragtina í vinnuna í morgun. Hitti litlu systur í hádeginu (og gaf henni afmælisgjöfina – kom í ljós að ég keypti gjöf í fyrra handa henni úr sömu búð...ég er svo frumleg stundum) og hún var bara eiginlega eins klædd. Í svartri dragt og í rauðum bol. Ætli það sé einkennisklæðnaður löffana í dag? En ég er handviss um að rauði liturinn varð til þess að ég fann uppskrift til að elda eftir í kvöld. Meira að segja eitthvað nýtt sem ég hef ekki prófað áður, fylltar kjúklingabringur á ítalska vísu. Og búin að skrifa innkaupalista fyrir vikuna og ætla að storma í bestu búð höfuðborgarsvæðisins eftir vinnu.
Aldrei að vanmeta mátt lita í umhverfinu.... :o)
..