Monday, June 26, 2006

Veiði og humar

Við skruppum aðeins á rúntinn í gær, sunnudag. Kíktum á Þingvelli og þar skein bara sólin og vatnið var alveg spegilslétt. Þar sátum við í einni víkinni og þóttumst vera að veiða eitthvað og Aska var í essinu sínu. Þetta var ægilega ljúft og indælt. Kíktum aðeins á Úlfljótsvatn og borðuðum nestið okkar og Beggi kíkti eftir risaurriðum. Hittum þar fyrir einn kunningja sem keypti þarna lóðir á háum prís og sá prís hefur víst tvöfaldast. Algjör bilun í gangi fyrir eitthvað sem manni finnst alls ekki þess virði. Síðan lá leiðin í Grímsnesið og svo á Selfoss. Þaðan rúntuðum við niður í fjöruna við Stokkseyri og enduðum í humri við Fjöruborðið. Namminamm. Að lokum fengum við okkur svo SvissMocha á KaffiKrús á Selfossi og lulluðum í bæinn aftur. Bara alveg frábær dagur. Og mikið rosalega er fjaran falleg þarna fyrir austan. Blálilja var í miklum blóma þannig að það var svona bláleitur blær yfir allri fjörunni. Virkilega flott.
En það vakti athygli okkar að allan Þingvallahringinn og í Grímsnesinu var ofboðslega mikil umferð og mikið af fólki. Þarna var hálf höfuðborgin á ferð held ég. Synd ef hávaðamengun sökum umferðarþunga fer að eyðileggja friðsældina þarna fyrir austan.
...

Wednesday, June 21, 2006

Huh?

Það er sól úti!?!?!! Ótrúlegt. Ég veit varla hvað ég á af mér að gera...
...

Monday, June 19, 2006

Kvef og læti

Eyddi gærdeginum og nóttinni í kvefþjáningar frá helvíti. Ömurlegt að fá svona heiftarlegt kvef núna. Og það er vont að hnerra og hósta með bumbu. Þetta kvef byrjaði ósköp sakleysislega sl. föstudagskvöld en skall á af miklum þunga í gærmorgun. *snýt* Oj bara.
..

Saturday, June 17, 2006

Þjóðarbúskapurinn

Það er kannski bara ágætt að fá einn farsælasta fjármálaráðherrann í stól forsætisráðherra. Geir hefur svo sem ekki verið þekktur fyrir að spandera fjármunum. Ég bara vona að hann herði samt ekki ólina í velferðarmálum - sú ól hefur verið ansi strekkt undanfarin ár og má ekki við meiru. Hins vegar er alveg kominn tími á að slaka á í stóriðjumálum - eiginlega bara leggja allt slíkt á hilluna í bili. Áfram Framtíðarlandið Ísland!!! Skora á ykkur að skrá ykkur í félagið!

Friday, June 16, 2006

Lágvært suð

Nýja þvottavélin kom áðan - loksins! Fyrsti þvotturinn er að veltast um í henni og það heyrist varla neitt nema lágvært suð. Mikið rosalega hefur gamla vélin verið hávær!
....
Vatnsveður...

Hvað er eiginlega með þetta veður? Það er eins og öll rigning á norðurhveli jarðar þurfi að falla á suðvesturhorn landsins akkúrat núna í júní. Það er rigning í kortunum eins langt og augað eygir fram í næstu viku. Þetta veður er farið að minna mig á rigningarsumarið þegar ég og Íris vorum í unglingavinnunni í Breiðholtinu hérna i denn. Upp á hvern einasta dag klæddum við okkur í regnstakkana og fórum með Ellefunni niðrí Bakka og héngum þar fram á hrífur og sköfur og létum okkur dreyma. Stundum um betra veður jú, en líklega oftar um stráka og Duran Duran. Keyptum okkur Apollo lakkrísrúllur og annað nammi, hlustuðum opinmynntar á eina stúlkuna í hópnum sem virtist ægilega reynd og lifuð miðað við okkur og blótuðum arfanum sem spratt sprækur í öllu votviðrinu. Og þannig leið þetta sumar, í einhverjum rigningarsudda. Enda var þetta mitt fyrsta og síðasta sumar í unglingavinnu, sumarið eftir vann ég á gistiheimili og hóteli og sumrinu þar á eftir eyddi ég í sólinni í Suður-Noregi. Mér verður oft hugsað til "ást" minnar á arfanum þegar ég af fúsum og frjálsum vilja fer hér út í garð í sudda og fer að reyta arfa af bestu lyst!

Annars var ég að hleypa Ösku út að pissa. Hún er ekki alveg að fíla þetta veður heldur, því það þýðir að eigendurnir eru ekki alveg jafnsprækir í að skottast með hana úti. Og svo fær hún ekki að leika sér lengi úti því þá verður hún öll blaut og skítug. Það er bara út að pissa og inn aftur! En við erum að spá í að fara kannski að veiða eitthvað um helgina, líklega í Þingvallavatni og þá fær hún eitthvað að dinglast úti.
....

Thursday, June 15, 2006

Búin að....

* gera og skila framtalinu okkar hjóna (já, veit - soldið seint, en ég nýti mér endurskoðendafrestinn...)
* ganga frá staðgreiðslunni fyrir fyrirtækið
* raða bókhaldsgögnum fyrir fyrirtækið
* Skila rauðvínsflösku í HM pottinn í vinnunni og syngja inn á myndband
* Vinna nokkur verkefni fyrir vinnuna
* Hjúkra veikum eiginmanni og vorkenna honum svo á meðan hann stóð úti í rigningunni að hjálpa Kjartani gröfukarli
* Tala við mömmu í Suður Frakklandi
* Hringja í báðar systur mínar sem ekki svöruðu
* Bíða árangurslaust eftir nýju þvottavélinni minni...

Og ég held ég fari bara í háttinn í þessum skrifuðu orðum!
.....
Bara allt að gerast!

Ég var búin að ákveða að hafa það sem náðugast í dag, enda á ég að vera heima hjá mér í "hvíld" samkvæmt læknisráði, þ.e. gera sem minnst. En svo einhvern vegin þróast allt og nú er bara nóg um að vera. Kjartan mættur að grafa hjá nágrönnunum - búið að bíða eftir þessu í 2 ár - og það þarf að klára að bjarga gljámispilnum frá glötun, þvottavélin nýja kemur á eftir og rýma þarf í þvottahúsinu og ég þarf að klára ýmislegt fyrir fiskvinnslubókhaldið. Ég þarf nú reyndar að gera minnst, bóndinn stendur þarna úti með Kjartani gröfukarli og er að moka og hamast, með hálsbólgu og hita. Og ég fer varla að bera gömlu þvottavélina eitt eða neitt. En ég er rosalega góð í að hafa umsjón með þessu öllu....

...

Tuesday, June 13, 2006

Ja hérna hér...

Það er sól úti. Ég var eiginlega búin að gleyma því hvernig hún lítur út. Kannski maður komi þessu örfáu kryddjurtum niður - þær bíða gegnvotar hérna á stéttinni. Það var ekki hundi út sigandi í gær, Aska lagðist næstum því í þunglyndi en tók þann kostinn að misþyrma bangsanum sínum í staðinn.

Vaknaði við aðra rödd en venjulega í morgun. Hvað varð um Magnús? Hins vegar ætla ég að gefa hinum nýja morgunhana séns fyrir það eitt að hann spilaði lag með Beck af plötunni Sea Change. Sú plata er bara snilld.

Er á leiðinni í mæðraskoðun, best að greiða sér fyrir ljósuna.
.....

Monday, June 12, 2006

Bilun

Blessuð þvottavélin er biluð aftur. Hún bilaði um daginn en því var fljótreddað, skipt um kol og hún hrökk í gang aftur fyrir nokkra þúsundkalla. En núna, örfáum vikum síðar, virðist hún aftur orðin þreytt og neitar að vinda þvottinn. Þessi elska sem hefur fylgt okkur allt frá því að við byrjuðum að búa í Heiðargerðinu 1991. Jamm, hún er fimmtán ára og sömuleiðis sambúð okkar hjóna. Og þessi vél var innflutningsgjöf frá mömmu og pabba og hefur fylgt okkur síðan. Og núna er spurning að láta gera við hana á ný. Eða kaupa nýja. Kannski er betra að kaupa nýja heldur en að sitja uppi með gamla vél síbilandi þegar þvo þarf heilu fjöllin af tvíburaþvotti....
..

Thursday, June 08, 2006

Það eru kríur spígsporandi á lóðinni hjá mér. Úrvalið er því alltaf að aukast, því fyrir utan þetta venjulega (snjótittlinga, þresti og starra) þá hafa hér sest gæsir, endur, lóur, tjaldur, svartbakur og nú kríur. Það er greinilega eitthvað í grasinu hérna hjá mér sem freistar... :o)

Wednesday, June 07, 2006

Hin tíkin..

Hún er skrítin tík þessi pólítík þessa dagana. Ég datt inn á áhugaverðan pistil hjá Össuri hinum orðheppna núna áðan. Þetta er farið að minna á svolítið æsilegan saumaklúbb með mergjað slúður streymandi fram á alla kanta. Maður hefur svo sem ekki verið að velta sér upp úr því hverjir tilheyri hvaða fylkingum innan Framsóknar hingað til enda sá flokkur ekki höfðað til mín fram að þessu. En áhugavert er að fylgjast með! Mér sýnist alltaf vera fjör í fjölmiðlaumfjöllun nú orðið - kemur sjaldnast orðið gúrkutíð! Sem er hálfgerð synd því það var alltaf gaman að fá ítarlegar fréttir af útnárum þessa lands, aflabrögðum smábáta og uppákomum á Grenivík. Það tilheyrði orðið sumrinu. En nei, núna eru bara stórfréttir upp á hvern dag og Sigmundur Ernir alltaf jafn brúnaþungur á skjánum.
...

Tuesday, June 06, 2006

Sitt lítið af hverju

Hvítasunnuhelgin var ósköp ljúf og skemmtileg þrátt fyrir að við færum ekkert út úr bænum. Ég keypti sumarblóm á föstudeginum og Beggi var voða duglegur að koma stóra beðinu í stand og byrjaði líka að hlaða nýtt steinabeð. Við þurfum nefnilega að hálfrústa beðinu meðfram innkeyrslunni því það þarf að færa allar plöntur til svo að þetta stemmi allt. Laugardagurinn var alveg frábær því æskuvinkomu minni var komið á óvart með alveg stútfullu gæsaprógrammi. Það var m..a farið í magadans, skemmtileik sem fól í sér gamla leiki eins og hollí hú og teygjó og svo heimsókn á baðstofuna í Laugum. Ég ætla pottþétt þangað aftur, alveg ferlega notalegt. Kannski ekki skrítið því ég er potta- og baðfíkill þessa mánuðina. Gæti búið í sundlaugunum. Væri samt skemmtilegra að fá betra veður svona almennt - mér finnst alltaf vera rigning eða kalt! Veðrið var hins vegar alveg yndislegt sl. laugardag, enda var meirihluta dagsins eytt útivið. Á sunnudeginum var ég bara í leti, en fór svo í mat til Huldu systur á meðan eiginmaðurinn sinnti mótorhjólaáhuganum við Heklurætur. Í gær fórum við svo í bíó og sáum X-men 3. Bara alveg ágætis afþreyingarmynd og krílin voru ansi aktív á meðan, mikil aksjón og fullt af poti og spörkum!
Við kenndum líka Ösku í gær að heilsa, og þegar Beggi rifjaði þetta upp með henni í morgun þá var hún sko alveg með þetta á hreinu. Það greinilega virkaði vel að kenna þetta með kindakæfu - henni finnst það algjört lostæti!

Annars er ég í hálfgerðri fýlu. Ekkert Prison Break í sjónvarpinu í kvöld. *sniff*

Saturday, May 20, 2006

Öskublogg

Aska hin Austfirska er öll að koma til eftir veikindin í vikunni, en þá þurfti hún að fara í smá aðgerð og lyfjakúr vegna sýkingar í kirtlum og augum. Hún var ægilega aum eftir aðgerðina og við hjónin ekkert síður aum að horfa upp á hana slappa og reikula í spori eftir aðgerðina. En hún er öll að hressast og bíður nú eftir því að loforðið um göngutúr í Heiðmörkinni verði uppfyllt. Það er á dagskrá núna um helgina. Annars dafnar hún vel., orðin rúm 28 kíló og er enn að stækka held ég. Uppáhaldsleikur hennar er að finna fólk, hluti og mat, þefskynið í þessum hundi er alveg ótrúlegt. Ætli henni finnist þó ekki skemmtilegast að finna mat, t.d. pulsubita. Enda er hún matargat eins og flestir hundar. Við erum á löngum biðlista eftir hundanámskeiði, það er greinilega mjög "in" í dag og allir hundaskólar yfirfullir. En þetta er nauðsynlegt, það eru ákveðnir hlutir sem verða að vera í lagi þegar maður á stóran hund, eins og t.d. að flaðra ekki upp á aðra - ekki síst börn!
...

Friday, May 19, 2006

Sammála!

Ég og Páll Óskar erum sammála um að rúmenska lagið sé æðislegt. Á rás 2 var verið að segja frá því að söngvarinn hafi staðið sig mjög vel á æfingunni sem stendur yfir núna. Tornero - tornero.... Flottur taktur og á örugglega eftir að hljóma á öllum diskótekum í sumar. Palli var reyndar að segja að hann héldi að kántríframlag Þjóðverja myndi koma á óvart og vera í topp 5. Hmmm.....veit ekki alveg hvað mér á að finnast, þá fíla ég frekar hana dönsku Sidsel að tvista. Ég missti af Litháen í gær og hef verið að reyna að hlusta á það í gegnum netið án árangurs. Það segja margir að það hafi verið fyndið og skemmtilegt atriði. Svo segi ég bara áfram Finnland - þeir voru ógeðslega flottir í gær - í bókstaflegri merkingu. Og frábært sjóv hjá þeim með eldglæringar og gítargos. En þegar myndavélarnar koma of nálægt þeim þá fær maður hroll, enda var ég alltaf frekar hrædd við Orkana í Hringadróttinssögu!

Já, heilsan er greinilega betri í dag fyrst ég er að komast í Júróvisjónstuð... Minni á síðuna góðu, www.esctoday.com, þar er að finna margt gott slúðrið og umfjöllun um æfingar og keppendur!
...
Ég verð eiginlega að játa að ég er fegin að fröken Silvía komst ekki áfram. Það sparar manni þá skömm að þurfa að horfa upp á hana aftur í sjónvarpinu á laugardaginn og verða sér og okkur til skammar. Það verður bara ljúft að horfa á úrslitakeppnina, þá get ég haldið með Rúmeníu og Bosníu í friði og þarf ekki að hafa áhyggjur að verða flökurt af stressi.... :o)

...

Monday, May 15, 2006

Ég fór í vinnuna í dag í fyrsta sinn eftir langa fjarveru. Svolítið skrítið að sitja allt í einu bara við skrifborðið og vera farin að vinna. Ég komst að því að ég hafði greinilega vanist því ágætlega að vera bara heima. Ég vann nú samt ekki fullan vinnudag, er ekki með leyfi fyrir því ennþá. Ég var send á ferlíkinu í vinnuna og komst að því að öll bílastæði í Borgartúni passa ekki fyrir jeppann, ég var í miklum vandræðum með að leggja honum. Hinn var í bóni og þvotti og beið mín skínandi fínn þegar ég kom heim áðan. Verður fínt að fara á honum á morgun - því þá get ég lagt í bílageymslunni.

Horfði á Eurovision sérfræðingana í gær og er á því að í úrslitakeppninni eru fyrir mörg slöpp lög. Eitt lag bar þó af og það var Rúmenía - enn og aftur. Þeir kunna greinilega að gera skemmtileg Eurovisionlög. Lögin í undanúrslitunum eru svo yfir heildina miklu betri. Þetta á eftir að verða ansi áhugavert þótt okkar fulltrúi sé að fara í taugarnar á mér. Enda er mér nokk sama hvernig henni gengur.
....

Thursday, May 11, 2006

Tiltekt

Eyddi morgninum í tiltekt í fataskápum og hillum. Hef verið grimm í að henda og leggja til hliðar alls konar flíkur sem ekki hafa séð dagsins ljós í 1 eða 2 ár. Svo vorum við að kaupa alveg frábærar kommóður í Ikea og nú er bara nóg pláss. Yndislegt. En ég komst að því að ég þarf að komast til Ameríku að versla. Nánar tiltekið í búðina sem kennd er við hana Viktoríu. Ég hef greinilega ekki verið nógu dugleg að eyða peningum þar í NY í fyrravor. Og nú er undirfataskúffan eins og eyðimörk fyrir utan gæðavöruna frá henni Viktoríu sem sum er farin að slaga í fimm árin enda endist varan hennar von úr viti.
...
Það lítur allt út fyrir að ég fái að kíkja í vinnuna eftir helgina. Mikið verður það mikil tilbreyting! Ég má þó hins vegar ekki fara í fulla vinnu enda held ég að ég hafi ekki orku í svoleiðis ennþá. En þessa vikuna hef ég reynt að borða sem mest og drekka sem mestan vökva og vera dugleg að taka inn vítamín til að bæta upp 3 mánaða næringarskort. Enda er ég að borða rjómaís reglulega samkvæmt læknisráði....ekki amalegt í góða veðrinu!! Ég fór sem sagt í mæðraskoðun í fyrradag og leghálsmælingu í gær og allt leit bara vel út á öllum vígstöðvum. Er hætt að léttast..sem er mikill léttir. Ekki það - það er ekkert leiðinlegt að hefja tvíburameðgöngu á því að missa fullt af kílóum - það er bara hins vegar ekkert æskilegt! Og kannski leiðinlegt á meðan á því stóð :o)
En við gömlu hjúin fórum í bíó í gærkvöldi - það verður stíft prógram í bíó og út að borða í sumar - ég ákvað það í rúmlegunni, eitthvað verður maður að hafa fyrir stafni.... En Tom Cruise stóð sig ágætlega, myndin var spennandi og alveg týpísk svona sumarmynd sem skilur ekkert eftir en er alveg nauðsynlegt að horfa á af og til.
...

Monday, May 08, 2006

Þreyta og leti

Ég er hálfþreytt í dag. Sama á við um Ösku, hún hefur sofið meira og minna síðan við lögðum af stað heim úr bústaðnum í gær. Krakkarnir voru svo duglegir að leika við hana alla helgina að hún er alveg búin. Kom hérna heim áðan með húsbóndanum og skreið bara upp í sófa og neitaði að fara aftur. Ég heyri hroturnar berast úr stofunni einmitt núna. Ég er hins vegar ekki sú brattasta heldur, ætla þó að fara að skríða framúr og reyna að borða eitthvað. Ég fer í skoðun á morgun og fæ þá að vita hvort ég fái leyfi til að byrja eitthvað að vinna aftur. Ég væri alveg til í að kíkja í nokkra klukkutíma á dag....svona til að missa ekki vitið.
...