Haustlægð?
Ég fer að halda að sumarið hafi gleymst. Það kom vor og svo bara allt í einu er komið haust. Bara næðingur og rigning. Ég leyfði mér í einhverju bjartsýniskasti að kaupa pils bæði í New York og á Englandi og litríka toppa og bjóst við einhverri smá sól og ljúflegheitum í veðri. Hef hingað til ekki orðið vör við það, besta veðrið hérna suðvestanlands var á meðan ég var úti, ég náði í skottið á einum degi þann 17. júní. Ég er greinilega í einhverju bjartsýniskasti eftir hitabylgjuna í fyrrasumar þegar ég var að kafna úr hita á Hornströndum í 25 stiga hita, sóli og logni.
Eftir viku held ég aftur vestur, núna til Djúpavíkur á Ströndum, með fjölskyldunni. Æ, ég vona að það verði eitthvað annað veður en bara rok og rigning.
...
No comments:
Post a Comment