Sunday, January 28, 2007

Söngvakeppnin..

Og enn eitt árið er komið að Júróvisjón. Og aftur svona undankeppni eins og í fyrra. Sá fyrsta þáttinn með öðru auganu og svo endursýndan. Horfði á þáttinn í gær með áhuga. Hafði það sterklega á tilfinningunni að lögin hefði almennt verið verri fyrsta kvöldið og fleiri góð lög í gærkvöldi. Synd að raða þessu svona því það sátu eftir a.m.k. 2 góð lög í gær.
En hvað var með búningana hjá bakraddasöngkonum Jónsa? Við hjónin vorum sammála um að þeir voru hræðilegir. Svo hræðilegir að við urðum að skipta um rás en hertum okkur svo upp og skiptum aftur yfir á Sjónvarpið og hlustuðum bara og horfðum útundan okkur á skjáinn. Þá gekk þetta upp og lagið var alveg ágætt.

3 comments:

Anonymous said...

Sammála, "þetta" var ófögur sjón. Ég þurfti líka að skipta um rás. Og svo þegar þær loks hófu upp raust sína þá heyrðist ekkert í þeim.
Undarlegt allt saman.

Anonymous said...

Ekki þurfti ég að skipta um rás, þvert á móti, mér varð svo starsýnt á lærin á þeim að mér brá þegar dóttirin sagði: mamma, sjáðu, þær eru í sundbol!

NN said...

Ég var svo upptekin af æðunum (og handleggjunum) á Jónsa að ég tók ekkert eftir þeim fyrr en í endursýningu. Er þetta ekki bara það sama og ,,frábær draumur, maður". Reyna að sannfæra okkur um að Jónsi sé ekki hommi:)