Friday, February 09, 2007

Alveg snilld

Bloggsvæði Moggans er hrein snilld. Er alveg búin að sjá það, því ég get alveg flakkað endalaust á milli bloggara og lesið mér til um þeirra álit á fréttum. Og ætli þessi umsvif fréttablogga fari ekki bara vaxandi í aðdraganda kosninganna? Það er eins og það eigi sér ekki lengur neitt debatt heima í eldhúsinu, það fari allir á netið og bloggi um skoðanir sínar þar?! Nú get ég lesið hvað hún Gunna í Vesturbænum segir um Byrgismálið og hvað hann Jón hugsar um nýjustu skoðanakönnunina um fylgi stjórnmálaflokkanna. Eldhús- og kaffistofuumræður landans bara komnar á netið, vesgú! Sem er auðvitað bara snilld fyrir okkur heimavinnandi húsmæðurnar. Fáum bara skoðanir fólksins beint í æð...

Ég gaf mér tíma í gærkvöldi og horfði á Kastljósþætti síðustu daga, á netinu auðvitað. Vildi sjá þessi viðtöl við "drengina" í Breiðuvík. Ég var satt að segja agndofa og mikið hugsi yfir þessari mannvonsku. Dreymdi svo að ég var í jarðarför og ábyrg fyrir því að búa til sósu með matnum í erfidrykkjunni. Og sósan varð að vera rauð sem blóð. Ég hafði mikið fyrir því að fá rétta litinn. En það tókst. En ég vona innilega að þetta mál verði ekki þaggað niður á ný. Var því ánægð að lesa að núverandi félagsmálaráðherra ætlar að láta rannsaka sögu þessa vistheimilis sem og annarra sem hann hefur heyrt af að hafi átt sér stað harðræði. Hugsið ykkur, það gætu verið fleiri slík vistheimili sem stjórnvöld hafa á samviskunni. Hræðilegt.

2 comments:

Anonymous said...

Já þetta moggablogg er beinlínis hættulegt...algjör tímaþjófur!
Og heyrðu...afhverju þarf ég alltaf að gera þetta "word verifacation"?

Snjófus said...

Svo að það komi ekki svona ruslpóstacomment! Bara svona alvöru!!