Monday, January 23, 2006

Þessi helgi flaug einhvern veginn framhjá manni án þess að maður áttaði sig almennilega á því að það væri helgi. Annars var dagurinn í gær ósköp rólegur, hann fór mest megnis í heimilisbókhald og vinnu en við enduðum svo á því að fara í bíó, á Brokeback Mountain. Það er virkilega góð mynd, svolítið hæg en gott handrit og vel leikin. Og átakanleg saga um ást í meinum. Næst á dagskrá er að fara á Jane Austen og Geishumyndina með stelpunum, en ég ætlaði nú reyndar að vera búin að lesa bókina fyrst sem síðarnefnda myndin er gerð eftir. Hef ekki alveg náð að detta í hana ennþá. Hún er á náttborðinu, en ég hef nú aðallega verið að liggja í ferðabæklingum og sólarlandaauglýsingum og handbók um Andalúsíu. Næ að lesa um eitt hótel áður en ég sofna. Janúar er alltaf einhvern vegin svona - að dagarnir fljúga áfram í myrkri og maður er alltaf að fara að sofa.

Ég held ég þurfi að fara að komast í almennilega fjallaferð. Sjá snævi þaktar öldur og fell og fá íslenskt vetrarríki beint í æð. Sofa í fjallaskála, borða góðan mat og jafnvel komast eitthvað á skíðin. Ég myndi meira að segja þiggja nokkrar festur í skafli. Eða blindbyl. Fara í heita laug í 10 stiga frosti. Syngja í góðra vina hópi...

"Langar nætur, ljósa kalda daga,
hef ég leitað, það er mannsins saga,
fundið aðeins óma gleymdra laga
en ekkert svaaaaar, ekkert svar...."

Æ, best að drösla af stað í vinnuna. Er mánudagur eða hvað?!!

.....

Friday, January 20, 2006

Misþyrmingar

Jóakim Gottlieb eðalbangsi, öðru nafni Gotti, á ekki sjö dagana sæla núna. Eftir að hafa fengið að vera í friði í rúm tuttugu ár er honum núna flengt í allar áttir, nöguðum og slefuðum. En hann virkar ágætlega. Alveg eins og sjónvarpið á lítil börn. Aska er til friðs í fimm mínútur ef hún nær í Gotta. En ég fer bráðum að fjarlægja greyið Gotta. Áður en hundurinn verður orðinn of ágengur.

Annars vorum við í afmæli í gær hjá tvibbalingunum. Þær bera árin þrjátíu og þrjú bara vel. Og veitingarnar voru góðar. Aska var alveg búin þegar við komum heim. Það tók á að vaka lengur en til átta.
...

Wednesday, January 18, 2006

Vá!

Bara hálftíma á leiðinni í vinnuna í morgun í stað klukkutíma eins og í gær. Færri hálfvitar á sumardekkjum eða snjóhrædd grey að þvælast fyrir. Best að halda upp á þetta með pressukönnukaffibolla.
...

Tuesday, January 17, 2006

Mission accomplished

Skrítin tilfinning að standa úti klukkan hálfsex um morgun í skafrenningi og klofa í sköflum í garðinum hjá sér, sjá tunglið vaða í skýjum og heyra í briminu. Megintilgangurinn var þó auðvitað að fylgjast með því hvort Aska skilaði mat og drykk á réttan stað.

Það var líka gott að koma inn aftur og kúra upp í sófa með kaffibolla í myrkrinu.

...

Sunday, January 15, 2006

Svart, svart, svart og aftur svart...

Nú þegar vika hinna svörtu Toyota-bíla er á enda þá er ekki úr vegi að staldra aðeins við. Ég er ekki frá því að þetta virki sem svolítil bilun að eiga fjóra bíla á planinu hér fyrir utan og er ég jafnvel að spá í að leggja Corsunni einhvers staðar annars staðar og Snjófus ofurjeppi er á leiðinni á bílasöluna loksins á næstu dögum. Stærri Toyotan fer síðan innan tíðar í breytingu og þá verður talan aðeins eðlilegri. Hins vegar neita ég því ekki að þessar tvær svörtu eru bara fjandi glæsilegar. Og Aska hin svarta harmónerar líka ágætlega við þetta svarta þema sem er í gangi.

Það eru allir svolítið þreyttir á þessum bæ, ekki síst ferfætlingar. Enda hafa frænkur tvær verið duglegar að leika við þá, ekki síst eldri frænkan sem gisti hjá okkur í nótt og hefði sú helst viljað sofa hjá Ösku í hundabúrinu. Aska fékk líka að prófa að lúra aðeins í hjónarúminu, því allir vildu kúra aðeins lengur í morgun. Ægilega notalegt. Hins vegar verð ég að játa það að það fer betur í mig að hafa malandi kött sofandi á koddanum en nagandi hvolp...
...

Wednesday, January 11, 2006

Líkamsrækt og kjúklingur

Alltaf skal það sama brenna á manni í byrjun janúar, heilbrigði - mataræði - lífstíll. En á sama tíma er endalaust myrkur og rigning. Reyndar snjóaði í gær og hæfði vel þessum síðbúna Þrettánda hérna í sveitinni því þá var loksins kveikt í brennunni og alls staðar var verið að skjóta. En það urðu ákveðin þáttaskil í gær þegar húsbóndinn stal íþróttatöskunni minni og skellti sér í Hress á átaksnámskeið fyrir karla. Ég á nú minn þátt í að ýta að honum auglýsingunni og benda honum á að honum veitti sko ekki af svona námskeiði. Hann er alls ekki feitur, hefur aldrei verið það en það má alltaf styrkja og auka úthald, enda ætla sumir sér að leika meira á torfæruhjólinu í vor og sumar og þá þarfheldur betur úthald og styrk. Svo er ég að vona að hann sjái ljósið og hætti að kaupa nammi og gos - auðveldar mér allt átak! Það er kannski bjartsýni aldarinnar. En þegar að þeim tíma leið sem hann yrði búinn var ég eiginlega tilbúin með kvöldmatinn og biðum við Aska bara rólegar, hún var ekkert að kippa sér upp við sprengugleði nágrannanna og var bara að reyna að laumast inn í eldhúsið þaðan sem góða lyktin af ofnsteiktu kjúklingaleggjunum kom. En aldrei kom maðurinn heim, og var nú farið að líða langt fram yfir eðlilegan tíma. Ég var farin að halda að hann hefði örmagnast í tímanum og líklega væri verið að stumra yfir honum á meðan ég væri að hafa áhyggjur af ofelduðum mat. Ég hringdi í gemsann og viti menn...minn maður var bara að sýna nýja jeppann. Búinn að vera á týpískum jeppakarlakjaftagangi í þrjú kortér sem þeir einir þekkja sem hafa kynnst jeppamönnum. En sem sagt, hin ameríska Toyota er mætt á svæðið, ægilega flott og svört í stíl við Ösku hina austfirsku.
....

Saturday, January 07, 2006

Laugardagslíf

Ég var að hugsa um hvort ég ætti að tjá mig eitthvað um hversu það fór gríðarlega í taugarnar á mér að Herra Tarantino var að dásama drykkusiði íslenskra kvenna eða hvort ég ætti bara að halda mig við dýralífslýsingar úr sveitinni. Ég gæti t.d. sagt frá því að við hjónin sváfum ekki út í morgun því það þurfti auðvitað að hleypa Ösku út að pissa klukkan sjö. Þá var liðinn hálftími framyfir hinn venjulega vöknunartíma í vinnuna með húsbóndanum og hún missti þolinmæðina og gólaði því mjög hátt klukkan sjö. Ég var alveg viss um að hún myndi vekja alla götuna. Og ég var byrjuð að taka niður jólaskrautið klukkan átta, enda glaðvöknuð og búin að lesa Moggann og Fréttablaðið og fussa yfir Blaðinu, fá mér kaffi og setja í þvottavél. Nebbi ákvað hins vegar að sofa út og lúrði á rúmteppinu til fóta alveg fram til klukkan níu. Núna klukkan ellefu er Aska búin að lúra tvisvar og er núna á þriðja lúr. Ég er að hugsa um að taka hana til fyrirmyndar og leggjast aðeins í sófann með Eragon. Alveg ágætis drekasaga fyrir börn og ég er greinilega á sama þroskastigi og börn og voffar, því mér líkar það ágætlega að lúra og lesa sögur ætlaðar börnum og unglingum.

...

Friday, January 06, 2006

Rok og rigning

Veðrið hefur verið með alveg eindæmum leiðinlegt sem af er nýju ári. Það var fyrst í gærdag sem aðeins rofaði til eftir að það snjóaði og frysti en nú er enn og aftur rok - eða réttara sagt stormur og enn verra veður framundan í dag og næstu daga. Aska þverneitaði að fara í vinnuna í morgun, settist bara á forstofumottuna og vildi ekki einu sinni fara út að pissa. Henni er illa við svona leiðindaveður og vill auðsjánlega pissa bara inni. Skiljanlega! En hún var nú samt tekin í fangið og farið með hana út í bíl. Við vorum tvær einar heima í gærkvöldi ásamt kisunum auðvitað sem sváfu út um allt hús. Eftir að hafa leikið sér og borðað og farið út að pissa og það allt saman varð sú litla ansi vælin eitthvað og óróleg. Endaði fyrir framan sófann í stofunni þar sem hún reyndi nokkrum sinnum að komast uppá en tókst ekki og skældi hún í hvert sinn sem hún pompaði niður á afturendann. Eitthvað sem hún hefur aldrei gert áður og hefur aldrei haft neinn áhuga á að fara upp í sófa enda það almennt ekki í boði. Þá teygði hún sig og þá sá ég hverju sætti. Á sófanum lá nefnilega bolur og gallabuxur af húsbóndanum - sem eins og oft áður hafði verið að skipta um föt áður en hann fór að jeppastússast í einhverjum bílskúr - og Aska var að reyna að toga fötin til sín. Ég lyfti henni upp í sófann og hún tók bolinn einhvern vegin undir sig, boraði trýninu í efnið og saug aðra ermina og lagðist með þetta ofaná gallabuxurnar, alsæl. Og varð róleg sem lamb og steinsofnaði. Það er auðséð hver er í fyrsta sæti... :o)
...

Wednesday, January 04, 2006

Namm namm

Alveg ferlega girnilegur réttur sem verið er að bera fram í einum ofboðslega breskum þætti á BBC food. Englendingar kunna alveg að búa til eftirrétti, þeir mega eiga það. En maður á kannski ekkert að vera að horfa á svona þætti þegar framundan er aðhald og meinlætalíf. Ég fann meira að segja fyrir kókskjálfta í dag, líklega vegna ríkulegrar neyslu á þessum eðaldrykk yfir hátíðarnar.

Annars hefur það verið ansi fróðlegt að fylgjast með sambýli katta og hunds á heimilinu. Sú elsta, Ísafold, er auðvitað langskynsömust og lætur eitthvað lítið hundspott ekki trufla sig við að betla mat. Nebbi er hins vegar meiri rola og mamma hans er svo langmesta rolan, fer ekki undan rúminu fyrr en Aska er sofandi í kassanum sínum í bílskúrnum.

Framundan er sjónvarpsgláp og svo snemma í háttinn. Klukkan er átta og ég er byrjuð að geispa...

....
Annasamur dagur

Aska hin austfirska var mjög svo önnum kafin í gær. Hún var vakin "til vinnu" hálfsjö í gærmorgun og lúrði og lék sér á skrifstofu húsbóndans fram eftir morgni. Síðan fór hún í nokkra stutta bíltúra, m.a. í dýrabúðina að kaupa ól og nagbein en tók síðan á móti gestum heima, m.a. litlum frænkum sem fannst voða gaman að leika við voffa og svo kom stóri bróðir hennar í stutta heimsókn. Það urðu miklir fagnaðarfundir og þau kúveltust um allt gólf af gleði. En þetta tók á fyrir lítinn hvolp og hún var gjörsamlega búin á því um mitt kvöld. Við vorum eiginlega ekkert síður þreytt og vorum því komin snemma í háttinn. Allir sofnuðu snemma, menn, kettir og hundur en sú litla lét þó af og til heyra í sér inn á milli hvolpablundanna en eftir klukkan eitt heyrðist ekki í henni, enda þá greinilega steinsofnuð og hún var svo aftur vakin núna áðan. Þegar ólinni var smellt á hana fór litla skottið að sveiflast til á fullu, og hún settist á mottuna í forstofunni og beið eftir því að fá að fara út. Sem sagt, rúmlega fyrsti sólarhringurinn í sveitinni liðinn og enn sem komið er hafa ekki miklir árekstrar verið og enginn köttur farinn að heiman enn sem komið er.
.....

Tuesday, January 03, 2006

Öskubuska

Í gær bættist við nýr fjölskyldumeðlimur í sveitina. Hún heitir Aska, er Norðfirðingur og hefur ekki áhuga á köttum. Hún fór í vinnuna í morgun með eiginmanninum og dundar sér þar við að naga í tærnar á honum. Hún svaf í alla nótt, vaknaði einu sinni við veðurofsann og vældi en fór aftur að sofa þegar hún sá að hún hafði ekki verið yfirgefin.

Í gærkvöldi var henni strax kennt að það væri ekki í boði að vera alls staðar, enda þurfa kisurnar líka að eiga sitt athvarf. Og Nebbi er allavega ekki enn farinn að heiman, heldur fylgist vel með öllum hreyfingum Ösku og er jafnvel svolítið spenntur að sjá.

Þetta verður fróðlegt...

....

Monday, January 02, 2006

Jólaleti

Það var spurning hvort Jóladagur eða Nýársdagur væri meiri letidagur en sá síðarnefndi hafði þessa samkeppni með stæl því ég fór ekki úr náttfötunum fyrr en þegar kom að eldamennsku um kvöldið. Og satt að segja fór ég varla framúr, lá og las heila bók og horfði á 2 bíómyndir.

Í dag bíður mín það skemmtilega verkefni að læra á nýtt launabókhald fyrir fiskvinnsluna. Læt það ráðast hvort ég fer í vinnuna, enda svo sem ágætt að sitja hérna við borðstofuborðið og hlusta á Sunnu hrjóta. Það hefur róandi áhrif á mig og kemur í veg fyrir stórslys á tölvunni þegar þetta (launaforritið) er ekki alveg að virka eins og ég hélt að það ætti að gera.

Gamlárskvöld var hið skemmtilegasta kvöld þrátt fyrir arfalélegt skaup, góður matur og skemmtilegar hefðir. Bollinn minn leit ágætlega út fyrir komandi ár, brjálað að gera að venju og mikið af fólki þannig að varla verður árið lognmolla. Og Reykvíkingar brugðust ekki í skotgleðinni, himnarnir loguðu og reykmökkurinn lagðist yfir allt. Það er alltaf jafngaman að fylgjast með flugeldunum frá pabba og mömmu, útsýnið svíkur ekki. Við vorum komin ágætlega snemma heim, þannig að ekki var nú beint ástæða til þess að hanga á náttfötunum í allan gærdag, en mikið hrikalega var það notalegt!
...

Saturday, December 31, 2005

Nú árið er á enda...

...og við hæfi að segja eitthvað ægilega spekingslegt og viturlegt og vitna í fróma texta og ljóð en mér er efst í huga að fara og leggja mig aðeins. Kannski lesa smá og borða konfekt.

Annars erum við búin að kaupa flugelda, ganga frá leigusamningi fyrir húsnæðið undir fiskvinnsluna, borða kalkúnaafganga úr boðinu í gær og búa til villibráðarsoð fyrir rjúpusúpuna í kvöld. Boðið í gær heppnaðist vel, ofboðslega góður matur og við stóðum öll á blístri eftir matinn. Vinkonur mínar til tuttuguogfimm ára litu vel út og við vorum sammála um að við bærum allar aldurinn gríðarlega vel. Við ákváðum að byrja að safna fyrir stelpuferð t.d. til Ameríku. Svo skiptumst við á pökkum og strákarnir töluðu um bíla, flugvélar og veiði. Hið fínasta kvöld.

Í kvöld verðum við með fjölskyldunni, þ.e. systum mínum og foreldrum ásamt fylgisveinum og frænkum, prufum nýja rétti og horfum að venju um öxl, spáum í bolla og "kósum" okkur eftir fremsta megni.

Það eru byrjaðar sprengingarnar og að venju er Ísafold skítsama, Sunna er í felum og Nebbi stunginn af. Og ég er á leið undir sæng.

......
...

Wednesday, December 28, 2005

Fjórði í jólum...

Mikið agalega voru þessi jól eitthvað stutt. Ég var rétt sest með jólabókina og konfektið þegar kominn var tími á að fara aftur í vinnu. Ég er ekki frá því að þessi jólahelgi hafi liðið hraðar en venjuleg helgi. Og nú er farið að auglýsa flugelda á fullu! Ég bið ykkur vinsamlegast að kaupa alla flugelda hjá björgunarsveitunum en mun svo sem afsaka það þótt þið viljið kannski styrkja ykkar íþróttafélag. En hins vegar finnst mér alveg út í hött hvað margir einkaaðilar eru farnir að selja þetta dót. Ég sé þá ekki rífa sig fram úr rúminu um miðja nótt um hávetur að fara að leita að fólki sem hefur týnst á fjöllum eða er pikkfast upp á Hellisheiði eða öðrum heiðum. Flugeldasalan er megininnkoma þessara björgunaraðila og synd ef einkaaðilar ná að eyðileggja það.

....

Sunday, December 25, 2005

Svona eins og það á að vera...

...sofa út, lesa bók og borða Nóakonfekt, fá sparimorgunmat m.a. heitt súkkulaði og kaldan Hamborgarhrygg, fara aftur upp í rúm og lesa meira, borða meira konfekt og dorma aðeins yfir bókinni. Svona á Jóladagur að vera! Ég neita að fara úr náttfötunum fyrr en klukkan fjögur í dag í fyrsta lagi!

....

Wednesday, December 21, 2005

Mission impossible

Á meðan ég spókaði mig á Laugaveginum með "eldgömlum" vinkonum fékk bóndinn það verkefni að útvega jólatré. Það var með vilja gert að ég færi ekki með því ég fell bara fyrir minnstu og ræfilslegustu jólatrjánum sbr. reynsluna í fyrra. Og markmiðið í ár var að vera með háreist og glæsilegt tré enda allt nýtt og fínt í stofunni og lofthæðin yfir átta metrar. Fullkomið fyrir hátt tré.

Ég held að tréð sem bíði hér úti nái ekki einum meter á hæð.

...

Monday, December 19, 2005

steak
You taste like steak. You are hearty, strong, and
juicy. People all over the world love you and
you grace many tables with your presence. What
makes you special is the people that love you
and what they add to your natural character.


How do you taste?
brought to you by Quizilla
Skrítin tilfinning

Þótt það sé mánudagur þá finnst mér samt vera miðvikudagur eða eitthvað. Sérkennilegt, því venjulega er mánudagur bara eins og mánudagur. Hmmm...
..

Friday, December 16, 2005

Föstudagur...

Allt í einu er vikan búin og mér finnst hún nýbyrjuð. Líklega vegna þess að ég lá heima tvo daga veik og það voru annasamir þessir tveir dagar í vinnunni sem eftir voru. Svona "hlaupandi um eins og hauslaus hæna" dagar. Dagar þegar ég gleymi að drekka nóg vatn, hringja í eiginmanninn og mæta á bókaða fundi. Þá hrúgast inn verkefnin og ég er að reyna að gera tíu hluti í einu. Og núna er ég drulluslöpp en ætla nú samt að kíkja til nágrannans á eftir í jólaglögg. Það er nefnilega komið að árlegum hittingi fjögurra fjölskyldna hér í götunni en við kynntumst ágætlega í framkvæmdunum við húsin og héldum m.a. sameiginlega upp á það þegar túnþökurnar komu á lóðirnar okkar. Ég held reyndar að meginástæðan hafi verið sú að karlarnir "bonduðu" alveg svakalega yfir smíðagræjum, nöglum og öðrum karlatólum, notuðu hvert tækifæri til að lenda á kjaftatörn í bláu vestunum og með hamarsbeltin um mittið. En það er hið besta mál því við erum ægilega glöð með nágrannana okkar. Þetta er allt hið besta fólk, með ljúft geð og gott skap og síðast en ekki síst, skemmtilegt!
...

Wednesday, December 14, 2005

Dillandi snilld...

Hjálmar og Mugison í eina sæng í Kastljósinu kvöld. Alveg brakandi sniðug samsetning!
...