Í fyrra...
...fórum við í skemmtilega ferð vestur á firði um páskana (þegar við tókum eina af mörgum flugferðunum á jeppanum, í þetta sinn á Steingrímsfjarðarheiði) og þessi slóst í för með okkur. Skemmtilegur náungi, enda kom í ljós að hann heldur úti alveg frábærri bloggsíðu þar sem hann er með ótrúlega margbrotnar vísbendingaspurningar. Ég hef ekki lagt í að giska á neitt hjá honum ennþá, en skemmti mér konunglega við að lesa ágiskanir annarra! Hann Beggi dot com þekkir sem sagt rotturnar sem við höfum stundum ferðast með. Þær eru alveg efni í annan, langan pistil...
..
Monday, April 19, 2004
Kuldaboli
Voðalegur kuldi er úti, það voru ekki nema 3 gráður á mælinum heima í morgun. Brrr.... Það var samt fallegt veður og ósköp ljúft að sitja við eldhúsborðið í sólinni og lesa Moggann og ímynda sér að það væri komið sumar. Við vöknuðum frekar snemma, enda vorum við bæði sofnuð fyrir klukkan tíu í gærkveldi! Samt sofnaði ég síðdegis eftir að vinkonur mínar voru farnar, ætlaði að lesa smávegis en datt alveg útaf í klukkutíma. Það er annað hvort í ökkla eða eyra með þennan svefn minn...
Kjúklingurinn í græna karríinu og franska súkkulaðikakan mæltist ágætlega fyrir í gær og fær Hulda systir þakkir fyrir. Ég var bara að herma eftir henni. Ferskt kóríander og basilika passar bara nokkuð vel saman.
Framundan er annasöm vika í vinnu og félagslífi en ég er að hugsa um að hafa samt smákaffi á sumardaginn fyrsta fyrir nánustu familíuna. Um að gera að halda áfram að bjóða fólki heim, þá kannski helst þokkalega hreint hjá mér.
Ég er alveg ógurlega andlaus, skil ekkert af hverju ég er að bulla þetta hérna núna...nema kannski að ég var að atast í systrum mínum fyrir að láta ekkert í sér heyra neins staðar og get þá ekki verið þekkt fyrir að skrifa ekkert sjálf. En það er spurning samt sem áður hvort ég þurfi ekki að hafa eitthvað af viti til að tala um. En ég nenni bara ekki að röfla um jákvætt misrétti og stríðsrekstur í Írak....

Sunday, April 18, 2004
Vorkvef....
Tók eftir því í Smáralindinni í gær að það voru margir jafnkvefaðir og við hjónin. Enda byrjuðum við rúntinn í apótekinu og báðum um "Neþeril".... Ameríska kvefmeðalið mitt kláraðist í fyrri umferðinni af kvefinu í vetur. Enda hélt ég það ekki lengi út í afmælinu á föstudagskvöldið, því miður. Því það stefndi í svo fjandi fjörugt og skemmtilegt afmæli. En ég varla heyrði neitt né sá fyrir kvefi og slappleika. Við skriðum því heim um hálftólf, enda bæði heltekin af vorkvefinu. Í gær bættum við sem sagt á kveflyfjalagerinn okkar en fyrir áttum við norska brjóstdropa sem eru til að vekja hvern mann upp frá dauðum og svo bakteríudrepandi hálstöflur sem deyfa tunguna þannig að maður verður bæði þvoglumæltur og nefmæltur. En ég er samt sem áður frekar fúl því það er ekki á hverjum degi sem ég fer að djamma í byggð. Ég hef t.d. ekki farið á skemmtistað eða bar eða krá í Reykjavík í háa herrans tíð. Ég veit að sumir skilja ekkert í okkur, barnlausum hjónunum, en við eiginlega unum okkur betur í fjallaskálum eða í heimahúsi með góðum vinum og ættingjum. En stundum er gaman aðeins og kíkja á mannlífið í miðborginni. En það varð sem sagt ekkert úr því að sinni. Vöknuðum því snemma í gær, fengum okkur Nezeril, norska dropa og hálstöflur og var því ekkert að vanbúnaði að byrja að þrífa. Fengum svo frænda minn í stutta heimsókn sem ætlar að ráðleggja okkur með golfvöllinn okkar, þ.e. garðinn. Það stefnir allt í metstóra verönd því garðurinn er svo stór.... Síðan héldum við í Kópavoginn og skoðuðum einhverja frekar máttlausa sýningu í Vetrargarðinum, einmitt tengda garði og garðverkum. Ikea var næst á dagskrá, fundum loks húsgögn fyrir sjónvarpsloftið og ætlum að kaupa það í dag, búin að fara heim og mæla allt. Svo lá leiðin bara heim aftur og beinustu leið upp í rúm. Sváfum svo þar til tími var kominn á að gera eitthvað í matarmálum. Ágætis laugardagur fyrir utan snýtingarnar. Í dag fæ ég æskuvinkonurnar í hádegismat og svo bíður bara vinnan, þýskan og skattframtöl. Stuð.

Thursday, April 15, 2004
Páskarnir og afmælið
Páskafríið leið hratt og örugglega, enda alltaf svoleiðis þegar maður er í fríi! Við fórum norður á fimmtudagskvöldið, eftir gúrmei-mat hjá mömmu og pabba og hittum fyrir ferðafélagana okkar í sumarbúðum þjóðkirkjunnar við Vestmannsvatn í Aðaldal. Þaðan fórum við í dagsferðir næstu daga inn á hálendið í kring, skoðuðum Dettifoss og Þeystareykjasvæðið og skoðuðum m.a. alveg frábært fjós þarna í Aðaldalnum þar sem allt er sjálfvirkt, þ.e. svona róbot sér um allt og beljunum leið greinilega vel. Ég var alveg heilluð! Sá eins og skot að ég gæti alveg hugsað mér að verða bóndi þegar ég yrði stór. Og þá einmitt svona kúabóndi með róbot þannig að maður væri ekki eins bundinn. Svo var fjósakisan þarna mjög falleg, mjúk, kelin og hrein. Nýbornir kálfarnir voru ógurlega fallegir, litirnir í bústofninum þarna voru alveg ótrúlega skemmtilegir. Ég hló nú samt að sjálfri mér fyrir að verða svona heltekin af sveitarómantíkinni enda örugglega einfalda borgarbarnið í mér sem ekkert veit í sinn haus sem þarna réð ferðinni. En ég hef alltaf verið heillaðri af sveit fremur en borg, dýrum fremur en fólki og draumurinn er að búa einhvers staðar þar sem hægt er að vera með hesta og hunda og kisur og ..og..og... :o) Sem sagt, hápunktur ferðarinnar hjá mér var heimsóknin í fjósið í Grímshúsum í Aðaldal þrátt fyrir að margt annað skemmtilegt hafi komið uppá þessa daga fyrir norðan. Síðan hélt ég upp á afmælið mitt með því að gefa ferðafélögunum 35 gúmmelaðibombu og þeir sungu fyrir mig afmælissönginn. Frekar gaman því margir þeirra eru mikið söngfólk og því hljómaði söngurinn mjög vel! Líka greinilega góður hljómur þarna í samkomusalnum Við sungum líka nokkur sem erum öll saman í kór og þar sem ég, altinn, mundi ekki röddunina í vísu Vatnsenda-Rósu þá söng ég bara sópran. Og gat það bara alveg án nokkurra vandkvæða. Ég held að þetta hafi alveg gert sig hjá okkur. Vona það allavega!
Við heimkomuna á sunnudagskvöldið var minn maður orðinn frekar slappur og daginn eftir kom í ljós að hann var með háan hita og hefur hann því vermt bælið alla vikuna, alveg búinn. 39 stiga hiti fer heldur ekki vel í fólk almennt! Það var fyrst í morgun sem honum leið vel. Ég aftur á móti hef verið “á leiðinni” að verða slöpp frá því í gær en ekki svo að ég sé heima. Vonum bara að það verði ekkert meir úr því, ég hef engan tíma til að verða veik núna!

Thursday, April 08, 2004
Wednesday, April 07, 2004
Mínútu í munni, mánuð á maga...
Þetta sagði einu sinni fyrrverandi leigusalinn minn við mig þegar hún bauð mér í afganga af himneskri súkkulaðisælu sem hafði verið á boðstólum í saumaklúbbi hjá henni. Þessi kona var einn sá mesti öðlingur sem ég hef kynnst og Ísafold sá ekki sólina fyrir henni. Kötturinn sá var líka alltaf voðalega mikið fyrir nágranna okkar...og er enn. En sem sagt, hún Gígja sagði þetta við mig þegar ég smjattaði sem mest á súkkulaðihnossgætinu. Sú hefði átt að sjá til mín í kvöld. Var ég þó ekki smjattandi á neinu súkkulaði heldur afsprengi matargerðar í hæsta gæðaflokki. Kokkarnir á Sjávarkjallaranum hljóta að vera frá annarri plánetu. Maturinn var svo góður að matreiðslumaðurinn/eiginmaðurinn sagði að þessir kokkar væru komnir langt fram úr því sem hann kynni í faginu og er þá mikið sagt. Hann reyndar hafði upp úr þjóninum hvað væri í trufflusósunni í forréttinum hans og á ég því von á góðu þegar vel liggur á mínum. En það hjálpaðist allt að til að gera kvöldið (matinn!!!) ógleymanlegt. Ég féll alveg fyrir innréttingunum á þessum stað, ekki síst veggkertastjökunum sem eru á trésúlunum og ljósunum (sem notabene voru skoðuð vel enda henta einstaklega vel til eftiröpunar) og svo grófu steinunum í gólfinu og á veggjunum. Svo var maturinn bara gjörsamlega truflaður. Humarinn í forrétt með kóríander, Foie Gras og blómkáli var hárrétt eldaður, lambakjötið með truflunum var himneskt og það sem Beggi fékk sér var ekki síðra. Saltfiskurinn hans var To Die For, eins og kaninn myndi segja. Við fengum líka svona smásmakk á undan og það er á hreinu að ég þarf að grafa upp uppskrift af saltfiski með einvhers konar Chutney sem er svo steikt. Obbolega gott. Peter Lehmann Wildcard smakkaðist voðalega vel með þessu öllu, ég vildi ekki rauðvín að þessu sinni og það kom ekkert að sök að fá bragðmikið hvítvín með lambinu, enda allur maturinn einhvern vegin mjög léttur í maga. Fjórar og hálf stjarna. jamm....

Skóleysi
Ég er gjörsamlega skólaus. Þótt eiginmaðurinn viðurkenni það ekki þá er þetta staðreynd. Í nokkur skipti hef ég gert tilraun til þess að kaupa skó fyrir vinnuna en aldrei fundið neina og endað á því að kaupa eitthvað annað....t.d. dragt í Benetton eins og síðast. Það er nefnilega ekkert svo mikið skóúrval í búðunum. Þá á ég við skó sem hægt er að vera í vinnunni, eru svolítið pæjulegir en samt þægilegir. Ég skil ekki konur sem geta verið í svona skóm sem hafa enga hælfestingu, enda sést það líka á göngulaginu hjá þeim að þær þurfa að ganga varlega svo þær haldist í skónum. Ég nenni ekki að standa í svoleiðis í vinnunni, hlaupandi milli hæða og á milli fyrirtækja.
Sá reyndar eitt skópar í Steinari Waage, en það kostaði tæp mánaðarlaunin mín eða því sem næst þannig að ég sleppti því. Ég er ekki Carrie í Sexinu sem eyði 400.000 kalli í Manohlo Blahnik skó eða hvað sem þetta nú heitir!
Ég ætla að gera eina skóleitartilraun enn. Nú er það Laugavegurinn. Annars þarf ég að mæta í vinnuna í strigaskóm við dragtina n.k. þriðjudag...

Tuesday, April 06, 2004
Páskafrí...
Það er ekki amalegt að framundan sé páskafrí. Ég finn að ég er orðin svolítið mikið þreytt eftir veturinn og veitir ekki af smá leti. Kem sem sagt ekkert voðalega vel undan vetri nema að einu leyti. Ég er léttari núna en ég var. Sem er fínt og ég ætla alls ekki að kvarta yfir því. En þessi vetur hefur verið ansi leiðinlegur að mörgu öðru leyti. Fyrst og fremst út af snjóleysi. Já, ég ætla að nöldra yfir því einu sinni enn. Þrátt fyrir að dagurinn í dag hafi verið ósköp bjartur og fagur þá dugar það ekki til þess að lækna í mér ergelsið yfir þessu ótímabæra vori, sem hefur staðið yfir í allan vetur. Ömurlegt. Skil ekki til hvers verið er að selja skíðaútbúnað hér á þessu landi. Annað sem hefur pirrað mig er tímaskortur. Það hefur farið alltof mikill tími í vinnu, en ég vona að það fari nú skánandi þegar líður að sumri. Sé það á heimilinu að ekki hefur gefist mikill tími til að sinna því. Efst á óskalistanum er því að fá hreingeringarkonu einu sinni í viku. Var með svoleiðis áður og það er ekkert nema snilld...
Annars vorum við hjónin að versla áðan fyrir páskana. Leyfði mér ýmislegt sem hefur ekki sést lengi í innkaupakörfunni og auðvitað fékk ég að greiða fyrir það dýrum dómum á kassanum. Maður má aldrei leyfa sér neitt á þessu guðsvolaða landi, þá þarf það alltaf að vera svo dýrt. Eins og t.d. verðlagningin á páskaeggjum. Hún er sko ekki alveg að gera sig á mínu heimili. Datt þetta lið á hausinn áður en það ákvað verðlagninguna á holum súkkulaðieggjum? Maður er greinilega að borga fyrir pappírsblómið framan á egginu. En, ég lét það samt eftir mér, enda á ég afmæli um páskana og ætla því að smjatta á einu páskaeggi af miklum móð. Jafnvel þótt í einu slíku séu 3000 hitaeiningar.......
p.s. kláraði bókina hennar Patriciu Cornwell. Þvílíkt bull. Mæli sem sagt ekki með henni....

Sunday, April 04, 2004
Helgin...
...hefur bara verið ágæt fram að þessu þrátt fyrir karlleysi. Stundaði hina ágætu þrenningu í gær, keypti mér föt, borðaði góðan mat og fór í bíó á góða mynd. Endaði svo á því allra besta sem til er....að lesa.... :o) Sem sagt, svaf frameftir í gær, reyndi að gera eitthvað í þessum framtölum sem ég er að vinna í, gafst upp og fór í Smáralindina að leita mér að skóm fyrir vinnuna. Hef ekki fundið neina enn en keypti mér dragt í Benetton sem ég kolféll fyrir. Fór svo í bókabúðina og keypti mér skáldsögu og bók um Barcelona. Fór svo í mat til vinkonu minnar, fékk þar enn fleiri kiljur lánaðar og sé orðið páskafríið í hyllingum. Gæti léttilega legið lárétt í 5 daga og lesið út í eitt. Verður reyndar ekki svoleiðis en ég mun örugglega finna tækifæri til þess að lesa þessar bækur. Ég fékk svo alveg meiriháttar tælenskan lambakjötsrétt að borða og svo skelltum við okkur í bíó á Cold Mountain. Alveg mögnuð mynd þótt að Nicole Kidman hafi verið aðeins um of "glamorous" í hlutverkinu. Býr einhvers staðar lengst í rassgati upp í fjöllum í skítakulda á tímum borgarastyrjaldarinnar og klæðist karlmannsfötum á leiðinni enn lengra upp í fjöllin en lítur út eins og hún sé að sýna föt fyrir Ralph Lauren. Svo er Jude Law er einum of fallegur til að vera á kvikmyndatjaldinu, hann eiginlega ruglar bara einbeitinguna hjá manni við að horfa á myndina. Alltof fínlegur í þetta hlutverk. En Renee Zellweger var agjör snilld. Rauðbirkin og búlduleit og úfin. Gat frekar samsamað mig við hana.
Þegar ég var svo komin heim átti ég alveg 4 bækur til að velja úr. 100% sæla! Ákvað að endurnýja kynnin við hana Kay Scarpetta. Ég er samt ekki frá því að stallsystir hennar, Tempe Brennan, í bókum Kathy Reichs sé skemmtilegri. Enda sýnist mér hún Patricia Cornwell sé farin að týna sér svolítið í sögufléttunni, líklega til að blása meira lífi í vinsældir sínar. Allavega, ég fíla Brennan betur.
Jæja, verð víst að fara að hafa mig til. Þarf að fara í fermingarveislu. Alveg ágætt því það er orðið nokkuð langt síðan ég fór í eina slíka!

Saturday, April 03, 2004
Grasekkja
Ég er karllaus um helgina, sendi manninn í karlaferð á Vatnajökul. Tja, eiginlega var mér bara ekkert boðið með. Ég er svo sem þokkalega sátt, enda skemmti ég mér á fjöllum um síðustu helgi með rúmlega 60 öðrum konum í frábærri kvennaferð Ferðaklúbbsins 4x4. Og ég þarf að sinna skattframtalagerð um helgina hvort eð er. Ætla að kíkja í búðir mér til skemmtunar og fara í bíó með vinkonu minni. Svo að ég er ágætlega sátt. Samt ekki alveg. Hefði alveg verið til í að fara í gufu á Grímsfjalli um helgina. Alltaf gaman að fara á aðalskaflinn á landinu. En ég fæ kannski tækifæri til þess um páskana, en þá förum við Flugsveitin ásamt Rottugenginu (þetta er nú meira ónefnið á þessum félögum mínum sem er hið besta fólk en datt greinilega á hausinn þegar þau ákváðu nafnið) norður í Aðaldalinn og ætlum að kanna hálendið þar í kring. Vonandi rúntum við svo Kverkfjöll-Grímsfjall heim. Vona bara að Snjófus hafi það af að fara aftur á þessar slóðir, endaði nú ekki vel sl. sumar. Og ég er enn að borga það! Verð alveg mökkfúl af því einu að hugsa um þetta bévítans umboð. En segi nú bara ekki meir. Komnir nýir eigendur, vonandi skánar bara þjónustan og viðmótið.
Það er nokkuð margt sem ég ætlaði að röfla yfir, en fyrst ég gerði það ekki strax þá er ég búin að gleyma því. Minnið mitt er eins gloppótt og hinn ágætasti svissneski geitaostur. Liggur víst í ættinni. Ég hef líka áhyggjur af því að ég skuli verða svona hundfúl yfir mörgu. Ég hlýt að vera hin versta nöldurkerling. En mér er svo sem sama. Það sem t.d. pirrar mig ósegjanlega þessa dagana er að blaðburðarþrælarnir ýta ekki blöðunum alveg inn um lúguna. Þannig að blöðin eru alltaf blaut eða rifna þegar ég er að reyna að ná þeim alveg inn. En ég segi ekki orð því þetta eru illa launaðir þærlar sem eru hetjur að vakna svona snemma svo ég fái blöðin með morgunkaffinu. Segi því ekki orð, set Moggann og Fréttablaðið á ofninn svo þetta þorni nú aðeins. Annars hef ég nú fengið DV í tæpar 2 vikur. Skildi ekki af hverju því ekki fékk ég nein sölusímtöl í kjölfarið. Hef því fylgst með mannorðsmorðunum undanfarnar vikur alveg ókeypis og án þess að ég hafi nokkurn áhuga á því. En svo hringdi síminn í fyrradag og var spurt um eiginmanninn. Hann andvarpaði bara í símann: "þetta er í fjórða skiptið sem þið hringið, svarið er nei og aftur nei!". Kannski hættir blaðið að fara að koma núna. Ég hef ekki orðið undan að fara í endurvinnslugáminn hérna á Álftanesinu til að tæma blaðakassann! Þvílík sóun á pappír.
Annars er lítið að frétta annað en það að laukarnir í garðinum eru að gægjast upp hver af öðrum, ég á afmæli eftir nokkra daga og ég staðfesti ferð til Spánar í gærmorgun. Einnig hef ég í hyggju að fara í ferð með Íslenskum fjallaleiðsögumönnum í sumar ef ég finn dagsetningu sem passar. Hef heyrt að ferðirnar með þeim séu alveg frábærar og bæklingurinn sem fylgdi Mogganum í morgun gerði mig einbeittari í þeirri ákvörðum að fara með þeim inn á hálendið suðvestan við Vatnajökul. og fara á námskeið hjá þeim í ísklifri! Hljómar alveg ótrúlega spennandi!

Friday, March 26, 2004
Fiðrildi í maganum...
Ég verð að játa að ég er dolítið stressuð enda að fara á fjöll á eftir með rúmlega 60 öðrum konum á 29 jeppum. Það er sem sagt loksins komið að því, kvennaferð Ferðaklúbbsins 4x4. Undirbúningurinn hefur verið langur og strangur og kominn mikill hamur í konurnar. Tilhlökkun og smá kvíði í bland. Við höfum verið á hvolfi tvær í stjórninni að undirbúa þetta ásamt góðri hjálp frá öðrum frábærum þátttakendum og ég verð eiginlega að játa það að ég er svolítið þreytt. Enda nóg um að vera fyrir utan þennan undirbúning!
Ég held að ég verði svolítið fegin þegar helgin er búin...

Sunday, March 21, 2004
Árrisul...
Getur einhver útskýrt það fyrir mér af hverju ég vakna útsofin og spræk á laugardags- og sunnudagsmorgnum klukkan sjö en á virkum dögum þarf glóandi tangir og tuttugu hross til að draga mig fram úr fyrir klukkan átta? Ég bara skil þetta ekki....
Var vöknuð fyrir klukkan sjö í gær og svo aftur núna. Náði meira að segja formúlunni í morgun léttilega.
Ekki það, svo sem ágætt að vakna snemma, enda þarf ég að undirbúa fyrirlestur og kennslu fyrir morgundaginn auk þess að vinna upp nokkrar vikur í þýskunáminu sem hefur verið ógurlega dapurlegt undanfarið, þ.e. af minni hálfu.
Fékk annars heimsókn í gær frá litlum skæruliða sem hljóp marga hringi í húsinu og stoppaði ekki fyrr en alveg í blálokin á heimsókninni. Ofboðslega ákveðin sú stutta! Ánægð með það. Vonandi verður hún alltaf þannig og lætur engan vaða yfir sig!!

Wednesday, March 17, 2004
Heimsókn
Suðrænir vindar báru með sér kærkomna heimsókn í morgun. Mikil tilhlökkun á þessum bæ að knúsa systur og systurdóttur seinna í dag. Veit ekki hvort skattamálin nái að halda athyglinni í allan dag. Kemur í ljós. Óvenju mikil bloggákefð í dag mun benda til þess að athyglin verði annars staðar en hjá skattskilum fyrirtækja...

Frekja.
Sumir karlmenn eru ótrúlega frekir. Tja, eiginlega flestir. Það er kannski rangt að alhæfa svona, en í nokkur skipti nýlega hef ég verið á fundi þar sem ungir, karlkyns stjórnendur hafa verið viðstaddir og um leið og þeim var misboðið, eða þeir móðguðust eða eitthvað sem sagt var fór eitthvað öfugt oní þá, þá bara átti að pakka saman, enda fundinn og fara. Ekki einu sinni hægt að ræða málin eða horfa á þau frá öðru sjónarhorni. Ónei. Bara fýla, frekja og ólund, yfirlýsingar og stóryrði alveg út í hött. Stjórnin á fundinum tekin af öðrum viðstöddum með frekjulegum tóni og ráðskast með aðstæður. Ástæðan er einföld, þeir geta ekki tekið gagnrýni á þroskaðan hátt. Hef ennþá ekki lent í þessu með unga kvenkyns stjórnendur. Þær virðast tilbúnari til að ræða málin og viðurkenna að það geti verið tvær hliðar á sama peningnum. Æ, ég er bara ennþá pirruð. Karlar eru alls staðar og ráða flestu. Óþolandi þegar maður veit fyrir víst að konur stjórna miklu betur.
Ég hefði getað verið miklu orðljótari í þessum pistli, og t.d. sagt að karlmenn séu fávitar í anda Nornanna, en ákvað að sleppa því. Þeir eiga það ekki allir skilið, allavega ekki gæðablóðið heima hjá mér. En það er mjög góð aðferð í svona tilfellum þegar maður hittir fyrir frekan, hrokafullan og leiðinlegan karlbjálfa að ímynda sér hann berrassaðan og hugsa "fáviti". Bregst aldrei....

Friday, March 12, 2004
Tippklúbburinn og heilsuátakið.
Ég er orðin virðulegur meðlimur tippklúbbs hérna í vinnunni. Þarf að skila af mér skýrslu um væntanleg úrslit í 2 leikjum í ensku knattspyrnunni um helgina. Hef legið yfir enskum slúðurvefsíðum og kannað hvort liðsmenn umræddra liða séu meiddir, í banni eða í fangelsi. Hef komist að þeirri niðurstöðu að líklega mun Wigan sigra Bradford í 1. deildinni, þó einnig séu líkur á jafntefli og Arsenal rúllar upp Blackburn í meistaradeildinni. En ef einhver myndi spyrja eitthvað nánar, s.s. hvað séu félagslitirnir, hver sé helsti markaskorarinn eða hvar í fjandanum í Englandi þessi lið séu staðsett þá myndi ég ekki getað svarað því. Ekki heldur hver varð meistari í fyrra. Ég nefnilega veit ekki rassgat um enska knattspyrnu. Aftur á móti hefði ég líklega verið liðtæk í formúlu 1 klúbbi. Þótt síðasta keppni hafi verið ÖMURLEGA leiðinleg þá ætla ég nú að horfa á þetta með öðru auganu í sumar og vona að Schumi og Co geri ekki endanlega út af við allan áhuga minn á formúlunni. Það er ekkert spennandi við það að hann vinni allar keppnir með yfirburðum. Frekar leiðigjarnt...
Svo voru mælingar áðan vegna heilsuátaksins í vinnunni. Það hafa fokið af mér nokkrir sentimetrar, vesgú. Og fituprósentan hefur lækkað. Vigtin hefur örlítið færst niður á við. Ég er sem sagt á réttri braut!!!
...

Monday, March 08, 2004
Helgin búin...
...og mér líður eins og það sé ennþá fimmtudagur. Þetta varð aldrei nein alvöru helgi - í þeim skilningi að slappa aðeins af, sinna helgarhreingerningu og lesa blöðin í rúlígheden. Nei, þessa helgi fór ég í tvo saumaklúbba, tvö matarboð, vann laugardag og sunnudag og fylgdist með rykinu koma sér vel fyrir í öllum skúmaskotum heima hjá mér. Ég er strax farin að hlakka til sumarfrísins. Jafnvel páskafrísins.
Og í dag er enn einn dagurinn sem ég kemst ekki í þýskuna. Fjandinn. Ég á eftir að skítfalla í þessu eina ræfilsfagi.
Nei, ég er greinilega ekki mjög jákvæð í augnablikinu.
Mööööö

Sunday, March 07, 2004
Sunnudagsblogg
Það var nú ekki ætlun mín að láta heila viku líða á milli bloggfærslna. Reyndar hafði ég ekki frá neinu merkilegu að segja, nema að mér fannst siðasti þáttur með hommunum á Skjá einum algjör snilld og að ég fór í Smáralindina og spreðaði í föt. Í sjálfu sér alls ekki merkilegt! Svo hef ég átt ágætis sósíallíf síðustu daga. Hitt vinkonur og saumaklúbba, á meira að segja eftir að fara í einn í kvöld, fundað með jeppakörlum og konum í 4x4 klúbbnum, m.a. að undirbúa kvennaferðina núna í mars. Minn maður hefði alveg verið til í að fara á fjöll þessa helgi en þar sem ég hef þurft að vinna, bæði í gær og í dag, og mæta í saumaklúbba þá varð hann að upplifa fjallamennskuna í gegnum vini sína, þ.e. í gegnum síma. Hann vill helst hafa mig með, ég er svo góður kóari... :o) Núna er hann reyndar alveg að drepast úr eirðarleysi, við fréttum í gærkvöldi að einn félagi okkar hafi lent í því að fljúga fram af hengju á jeppanum og allt í döðlum að framan og hann vildi helst fara í björgunarleiðangur, finnst hann þurfa að gera eitthvað. Við höfum nefnilega ágætan skilning á jeppaveseni á fjöllum eftir síðasta ár. Í þessum skrifuðu orðum eru sem sagt félagarnir að reyna að koma bílnum úr Laugafelli niður Sprengisandinn heim. Úff. En svo ég tali áfram um jeppamennsku þá er heilmargt framundan í því. Næstu helgi fara hópar á vegum klúbbsins í allar áttir í jeppaferðir, m.a. á Vatnajökul, í Setrið og í Laugafell. Hálfum mánuði seinna er svo kvennaferðin. Það er sem sagt nóg um að vera í fjallajeppadellunni. Bara vonandi að frost haldist á hálendinu ásamt snjó. Leiðinlegra að fara í krapaferð og eyða helginni í vöðlum.
Í dag ætla ég að vinna, fara svo til mömmu og pabba og enda daginn í saumaklúbbi og dást að litlum sætum krúttum.

Sunday, February 29, 2004
*Geisp*
Þvílíkur letidagur. Vaknaði reyndar eldsnemma, ætlaði í bíltúr upp á Skjaldbreið með öðrum konum að æfa mig fyrir kvennaferðina, en því var frestað. Bæði rigningarveður og svo allt á floti. Ekkert gaman að fara í dagsferð og aka í krapa eða litlum sem engum snjó. Vona bara innilega að það frysti þarna uppfrá og bæti svo aðeins í snjóinn. Já, já, ég veit. Sum ykkar eru voða ánægð með hlýindi og rigningu. Ekki ég. Það er nú bara rétt febrúar ennþá, mars á morgun. Vorið á ekki að koma fyrr en í apríl. Ég vil fá vetrarveður! Bjart og fallegt vetrarveður til að njóta á skíðum, jeppum og stunda endalausa útivist á fjöllum. Allavega, þá ákváðum við að fresta bíltúrnum og ég fór bara aftur uppí, með kaffibollann og moggann. Við fengum okkur svo morgunmat og skriðum aftur uppí og ég alveg steinsofnaði. Eftir lúrinn lá leiðin út í Bárukot, búðina okkar Álftnesinga, og þar leigðum við The Italian Job, alveg ágæta mynd. ´Núna heyrist mér Beggi vera sofnaður aftur, núna fyrir framan sjónvarpið. Sem sagt, við höfum gert lítið annað í dag en að glápa á sjónvarp, lesa, sofa og borða. Alveg það sem ég þurfti, enda að vinna í gær. Þyrfti eiginlega að vinna í dag líka, en ætla að fara að læra þýska málfræði í staðinn....ég hef alveg vanrækt þýskuna núna eftir áramót. Svo ætla ég að elda kjúklingabringurnar á eftir. Þessi ítalska uppskrift sem ég hef nefnt áður.....skera í bringurnar og fylla með hvítlaukssmjöri og Parmaskinku (já, eða bara beikoni - alveg jafngott), léttsteikja á pönnu og stinga í ofninn í smástund. Búa til kartöflustöppu, með rjóma og ferskri basiliku, og svo ferskt salat. Já, ég held að þetta verði bara hin ágætasta máltíð! Kannski ekki alveg í anda heilsuátaksins, en ég hef verið svo stillt undanfarnar vikur. Talandi um heilsuátak...ég held ég dragi sófakartöfluna út í labbitúr núna....